Nágrannaríki fái að nýta eigin auðlindir Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 23. mars 2014 14:11 Sigmundur vill að Grænlendingar ráði sjálfir yfir eigin auðlindum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sigmundur segir afstöðu ríkisstjórnarinnar skýra hvað makríldeiluna varðar.„Framganga Norðmanna í þessari makríldeilu hefur verið algjörlega óásættanleg og ég hef gert forsætisráðherra Noregs grein fyrir því og ég veit að fjármálaráðherra hefur gert það líka," sagði Sigmundur. „Það sem okkur þótti sérstaklega ámælisvert var einmitt þegar Norðmenn fóru að skipta sér af tvíhliða samningum Íslendinga við önnur ríki." Aðspurður sagði Sigmundur viðhorf ríkisstjórnarinnar til aukins kvóta Grænlendinga ekki ráðast af því hvort Íslendingar fái að nýta auðlindirnar. „Afstaða okkar er sú að nágrannaríki okkar eins og önnur lönd eigi að fá að nýta eigin auðlindir. Grænlendingar ráða yfir sínum auðlindum og ef þeir vilja vinna með Íslendingum að nýtingu þeirra þá er það að sjálfsögðu bara þeirra mál og okkar Íslendinga, ekki Norðmanna."Aðrar auðlindir en fiskurinn í GrænlandiSigmundur segir auðlindavinnslu í Grænlandi bjóða upp á ýmis tækifæri fyrir Íslendinga á komandi árum. „Það eru gríðarlegar auðlindir í Grænlandi aðrar en fiskurinn. Þar eru olía og gas og námuvinnsla sem verður mjög umtalsverð, mjög mikil á næstu árum og áratugum. Þá hefur verið bent á að Ísland liggi best við að þjónusta þá starfsemi á stórum hluta Grænlands, það er að segja í austanverðu Grænlandi. Í þessu felast mjög mikil tækifæri fyrir okkur Íslendinga."
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent