„Ísland þarf að stíga í átt til meira frjálsræðis og leggja niður Ríkisútvarpið“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 23. mars 2014 16:44 „
Það þarf að straumlínulaga Ríkisútvarpið,“ segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í þættinum Mín skoðun sem sýndur var á Stöð 2 og Vísi í dag. Þar voru málefni Ríkisútvarpsins rædd. Össur segir Magnús Geir Þórðarson, nýráðinn útvarpsstjóra, verða að ganga mjög hægt um dyr varðandi það að nota fjárhagsstöðuna til að ráðast í róttækar uppstokkanir. „Hann á að þekkja þessa fjárhagsstöðu. Hann var í útvarpsráði, hann var eftirlitsaðili.“ Össur segir það hafa komið til greina á síðasta kjörtímabili að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Hann segist þó vera á þeirri skoðun að það eigi að vera opinbert útvarp.Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, segir þjóðina eiga að fá að ákveða um tilvist Ríkisútvarpsins. Hann segir að fyrirkomulagið í dag sé engan veginn að tryggja eitt af meginhlutverkum ríkisfjölmiðilsins, sem sé að hafa eftirlit með hinu opinbera. „Ríkisfjölmiðillinn eins og hann er rekinn í dag, þá er eignarhaldið ríkisins. Skipun í stjórn sem ákveður síðan alla yfirstjórnina og starfsmenn er alfarið frá meirihluta þingsins, sem þessi fjölmiðill á að hafa eftirlit með, og meirihluti peninganna kemur líka frá hinu opinbera.“Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lögfræðinemi segir að það sé sérstakt að sjá að ríkisútvarp geti ekki rekið sig á fjórum milljörðum með almennilegum hætti. „Þetta gerist svo oft með opinberar stofnanir að þær koma illa út úr fjárhagsáætlunum af því að það er enginn agi. Það er svo auðvelt að sækja meira fé til skattgreiðenda af því að þetta er skylda okkar. Það er verið að taka peninga með valdi og Ísland þarf bara að fara að stíga í átt til meira frjálsræðis og leggja niður Ríkisútvarpið.“ Umræðuna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira