Vona að hljóðbækur með texta minnki brottfall úr framhaldsskólum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 23. apríl 2014 17:44 Notendur hljóðbókasafnsins eru um átta þúsund í dag að sögn Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur, forstöðumanns safnsins.
Alþjóðadagur bóka og höfundarréttar er haldinn hátíðlegur í dag. Það var Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem áttu frumkvæðið að því að gera þennan dag, 23. apríl, að alþjóðadegi bóka. Hefðbundnar bækur, kiljur og innbundnar bækur, eru eflaust það sem flestum kemur fyrst í hug þegar fjallað er um bækur. En tímarnir breytast. Fréttablaðið fjallaði meðal annars um það í dag að nú hafa bókasafnsfræðingar skorað á stjórnvöld að breyta höfundarréttarlögum svo að bókasöfn geti lánað út rafbækur. Síðan eru þeir til sem ekki getað lesið bækur sjálfir vegna sjónleysis eða lestrarörðugleika. Í þjónustumiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda geta þeir sem á þurfa að halda fengið bætur með blindraletri. Hljóðbókasafn Íslands býður síðan upp á hljóðbækur. Notendur bókasafnsins geta hlaðið bókunum niður af vefsíðu þess eða fengið lánaðar bækur á diskum. Notendur hljóðbókasafnsins eru um átta þúsund í dag að sögn Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur, forstöðumanns safnsins. 70 prósent þeirra eru lesblind og langstærsti hluti notendanna eru nemendur í framhaldsskólum. „Sú ákvörðun var tekin í fyrra að allar námsbækur yrðu gerðar bæði með hljóði og texta,“ segir Þóra. Nemendurnir hlaða bókunum þá niður í ákveðnu forriti í tölvu og þá birtist textinn um leið og hann er lesinn. Einnig birtast skýringamyndir þegar það á við. Hægt er að slá inn leitarorð. Sé nemandi til dæmis að lesa um ljóstillífun þá slær hann það orð inn og fær allar upplýsingar um ljóstillífun í þeirri bók sem hann er að lesa. „Það er því mjög auðvelt að ferðast í bókinni,“ segir Þóra. Þessi nýjung auðveldar námið mjög fyrir lesblinda að hennar sögn. „Þetta er í samræmi við það sem er að gerast á hinum Norðurlöndunum.“ „Við teljum þetta miklar framfarir og vonum að þetta komi til með að minnka brottfall úr skóla að einhverju leyti. Þetta þyrfti þó að gerast fyrr á skólastiginu og áður en nemendur eru komnir í framhaldsskóla.“
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira