Erlent

Fyrrum forsætisráðherra Tælands í haldi hersins

Bjarki Ármannsson skrifar
Yingluck Shinawatra hefur verið flutt á ónefndan stað ásamt fjölskyldumeðlimum.
Yingluck Shinawatra hefur verið flutt á ónefndan stað ásamt fjölskyldumeðlimum. Vísir/AFP
Yingluck Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Tælands, er í haldi hersins þar í landi ásamt fjölskyldumeðlimum hennar. Frá þessu greindi BBC fyrir stuttu

Líkt og greint hefur verið frá, hrifsaði herinn til sín völd í landinu í gærPrayuth Chan-ocha hershöfðingi sagði yfirtökuna lið í því að koma aftur á stöðugleika í landinu eftir um sex mánaða vargöld sem ríkt hefur í landinu.

Shinawatra á að hafa mætt til herstöðvar í Bangkok fyrr í dag samkvæmt skipun. Eftir marga klukkutíma dvöl þar var hún flutt á ónefndan stað. 


Tengdar fréttir

Tælenski herinn tekur völdin

Valdatakan sögð liður í því að koma aftur á stöðugleika í Tælandi eftir um sex mánaða vargöld sem ríkt hefur í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×