Átta af tíu Ameríkuþjóðum á HM áfram í 16 liða úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2014 22:30 Neymar hefur spilað vel með liði heimamanna. Vísir/Getty
Ameríkuþjóðirnar voru afar öflugar í riðlakeppni HM í Brasilíu sem lauk í kvöld en alls komust átta Ameríkuþjóðir af tíu í sextán liða úrslitin sem hefjast á laugardaginn. Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal urðu í dag þriðja Evrópuliðið, sem komst í undanúrslit á EM fyrir tveimur árum, sem er nú á heimleið eftir riðlakeppnina á HM í Brasilíu. Evrópumeistarar Spánar og silfurlið Ítalíu sátu einnig eftir í sínum riðlum og er þetta í fyrsta sinn í sögunni, sem tvö efstu þjóðirnar á EM á undan, komast ekki í útsláttarkeppnina á heimsmeistaramótinu. Fjórar aðrar Evrópuþjóðir eru líka á heimleið (Króatía, England, Bosnía og Rússland) sem þýðir að aðeins sjö af þrettán Evrópuþjóðum komust í sextán liða úrslitin. Hvort sem það sé hrein tilviljun eða ekki þá er það eiginlega þannig að því lengra sem er farið frá Brasilíu því verri var árangurinn þjóðanna í riðlakeppni HM því engum gekk verra á mótinu en liðunum frá Asíu og Eyjaálfu. Gengi liða í riðlakeppni HM í Brasilíu 2014 eftir álfum:Suður-Ameríka: 5 af 6 komust í 16 liða úrslit (83 prósent) Áfram: [5] Argentína, Brasilía, Kólumbía, Síle og Úrúgvæ Úr leik: [1] Ekvador.Norður- og Mið-Ameríka: 3 af 4 komust í 16 liða úrslit (75 prósent) Áfram: [3] Kosta Ríka, Mexíkó og Bandaríkin Úr leik: [1] HondúrasEvrópa: 6 af 13 komust í 16 liða úrslit (46 prósent) Áfram: [6] Belgía, Frakkland, Grikkland, Holland, Sviss og Þýskaland. Úr leik: [7] Bosnía, Króatía, England, Ítalía, Portúgal, Rússland og Spánn.Afríka: 2 af 5 komust í 16 liða úrslit (40 prósent) Áfram: [2] Alsír og Nígería. Úr leik: [3] Kamerúna, Gana og Fílabeinsströndin.Asía: 0 af 4 komust í 16 liða úrslit (0 prósent) Áfram: [0] Úr leik: [4] Ástralía, Íran, Japan og Suður-KóreaVísir/Getty
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira