Óvæntur sigur Kosta Ríka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júní 2014 11:40 Joel Campbell átti frábæran leik fyrir Kosta Ríka í kvöld Vísir/Getty
Kosta Ríka vann óvæntan 3-1 sigur á Úrúgvæ í fyrsta leik D-riðils á HM í Brasilíu í kvöld. Edinson Cavani kom Úrúgvæ yfir á 24. mínútu með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að Júnior Díaz braut á Diego Lugano, fyrirliða Úrúgvæa. Skömmu síðar átti Joel Campbell, framherji Kosta Ríka, þrumuskot sem fór rétt framhjá marki Úrúgvæa. Skömmu fyrir leikhlé bjargaði Keylor Navas, markvörður Kosta Ríka, sínum mönnum þegar hann varði skot Diegos Forlán, sem fór af varnarmanni, á frábæran hátt. Kosta Ríka-menn mættu svo ákveðnir til leiks í seinni hálfleik. Joel Campbell jafnaði leikinn á 54. mínútu með góðu skoti eftir aukaspyrnu Cristians Gamboa og þremur mínútum síðar kom Oscar Duarte Kosta Ríka yfir með skallamarki eftir aukaspyrnu Christians Bolaños. Kosta Ríka-menn bættu svo þriðja markinu við þegar varamaðurinn Marcos Ureña skoraði eftir stungusendingu frá Campbell. Þetta var fyrsta mark Ureña fyrir landsliðið í rúm tvö ár.Maxi Pereira fékk svo að líta rauða spjaldið í uppbótartíma fyrir að sparka í Campbell.Luis Suarez lék ekki með Úrúgvæ í kvöld vegna meiðsla. Klukkan 22:00 mætast svo England og Ítalía í seinni leik dagsins í D-riðli. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2, strax að HM-messunni lokinni.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira