Með væg brunasár eftir blossa á spa-svæði Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. apríl 2014 11:35 World Class Laugum við Sundlaugarveg í Laugardal. vísir/vilhelm
Ung kona var flutt á spítala með minniháttar brunasár eftir væga gassprengingu í World Class Laugum í morgun. Konan slasaðist þegar hún reyndi að kveikja upp í gasknúnum arni á spa- slökunarsvæði líkamsræktarstöðvarinnar. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning kl. 10:45 í morgun um gassprengingu í World Class, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Sendur var einn brunabíll og tveir sjúkrabílar á staðinn. Þegar þangað var komið var ljóst að umfangið var minna en talið var í fyrstu. Ung kona var flutt á spítala til aðhlynningar með brunasár á andliti og höndum. Sprengingin varð þegar hún var að reyna að kveikja upp í arni á spa-svæði líkamsræktarstöðvarinnar en hann er knúinn með gasi. Snöggur blossi varð með áðurnefndum afleiðingum fyrir konuna. Slökkviliðsmenn loftræstu svæðið, en nokkur gaslykt var á svæðinu. Höfðu slökkviliðsmenn lokið störfum klukkan hálf tólf fyrir hádegi og ekki þurfti að loka aðstöðunni vegna atviksins.Uppfært klukkan 11.51 Björn Leifsson, eigandi World Class, segir að fjártjón sé ekkert. Komið hafi upp snöggur blossi í arninum og kannað verði hvers vegna það hafi gerst, en slíkt eigi ekki að geta átt sér stað. Ekki þurfti að loka spa slökunarsvæðinu vegna atviksins en Björn segir að ekki verði kveikt upp í arninum fyrr en búið sé að laga hann.
Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Fleiri fréttir „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Sjá meira