Stjórnin fallin Hrund Þórsdóttir skrifar 18. apríl 2014 20:00
Ríkisstjórnarflokkarnir næðu ekki meirihluta ef gengið yrði til kosninga nú og myndu tapa tíu þingmönnum, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2, Vísis og Fréttablaðsins. Þar af myndi Framsókn tapa átta. Björt framtíð myndi hins vegar bæta við sig fimm þingmönnum og ná inn 11, eða jafnmörgum og Framsókn. Ef gengið yrði til kosninga núna fengi Framsóknarflokkurinn 17,1 prósenta fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn 25,6%, Samfylkingin fengi 19,3% og Björt framtíð 16,9. Vinstri græn fengju 10,9% og Píratar 6,8%. Í þingkosningunum í apríl í fyrra fékk Framsókn 24,4%, Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26,7%, Samfylkingin 12,9 og Björt framtíð 8,2%. Vinstri græn fengu 10,9% og Píratar 5,1%. Þetta þýðir að miðað við síðustu Alþingiskosningar myndi Framsókn tapa 7,3% og Sjálfstæðisflokkurinn rúmu prósentustigi. Samfylkingin myndi hins vegar bæta við sig 6,4%, Björt framtíð 8,7% og Píratar tæpum tveimur prósentum. Vinstri græn standa í stað. Þingsæti skiptast svona á Alþingi í dag: Ríkisstjórnarflokkarnir Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafa 19 þingmenn hvor, Samfylkingin er með níu, Vinstri græn hafa sjö, Björt framtíð sex og Píratar þrjú. Ef kosið yrði í dag myndi sætaskiptingin breytast töluvert, ef marka má niðurstöður könnunarinnar. Framsókn fengi 11 þingmenn og Sjálfstæðismenn fengju 17, sem þýðir að ríkisstjórnarflokkarnir sem samanlagt hafa 38 þingsæti í dag fengju 28 og næðu því ekki meirihluta. Samfylkingin myndi bæta við sig fjórum mönnum og ná 13 inn og Björt framtíð fengi 11 og bætti við sig fimm sætum. Vinstri græn myndu halda sínum sjö og Píratar bættu við sig einum manni og næðu inn fjórum. Hástökkvarinn Björt framtíð tapar þó í fyrsta skipti fylgi milli kannana og fer niður um eitt og hálft % frá síðustu könnun, sem gerð var í febrúar. Píratar tapa mestu, eða 3,4% en Framsókn bætir mest við sig, eða rúmum þremur prósentum. Hringt var í 1.332 manns þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 14. og 15. apríl. Svarhlutfallið var 60,1 prósent og þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 62,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira