UNICEF og Kiwanis gegn stífkrampa Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 21. mars 2014 08:00 Fulltrúar Kiwanis fræða gesti og gangandi um samtökin og stífkrampa í Kringlunni. Vísir/Daníel
UNICEF á Íslandi og Kiwanisumdæmið Ísland og Færeyjar hafa tekið höndum saman og hvetja landsmenn til að leggja baráttunni gegn stífkrampa lið. Í tilkynningu frá UNICEF segir að á níundu hverri mínútu deyi nýbökuð móðir eða nýburi úr þessum kvalafulla sjúkdómi en með bólusetningu megi koma í veg fyrir hvert einasta dauðsfall af hans völdum. Af þessu tilefni var opnuð sögusýning í Kringlunni í gær þar sem gestir og gangandi geta fræðst um sögu Kiwanis sem fagnar 50 ára afmæli hérlendis samhliða átakinu gegn stífkrampa. Félagar í Kiwanis munu auk þess dreifa upplýsingum um samstarfið við UNICEF og mikilvægi þess að stöðva stífkrampa fyrir fullt og allt. Meðal þess sem samtökin vilja vekja athygli á er að það kostar aðeins 210 krónur að bólusetja barnshafandi konu og ófætt barn hennar gegn þessari veiki. „Það er furðuleg tilhugsun að svo lág upphæð geti skilið á milli lífs og dauða,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.Mikill árangur hefur náðst í baráttunni gegn stífkrampa.Vísir/UNICEFÍ tilkynningunni segir að þótt bakterían sem veldur stífkrampa fyrirfinnist í öllum löndum jarðar hefur sjúkdómnum víðast hvar verið útrýmt með bólusetningu. Á árum áður var stífkrampi til að mynda landlægur meðal ungbarna á Íslandi og dánartíðni geysilega há. Í dag er hann er hins vegar nánast óþekktur á Vesturlöndum. Tekist hefur að útrýma stífkrampa í 34 löndum frá síðustu aldamótum og lækka dánartíðni nýbura af völdum sjúkdómsins um hvorki meira né minna en 90 prósent á tuttugu árum. Hann er þó enn að finna í 25 ríkjum. „Alþjóðlega Kiwanishreyfingin og UNICEF eiga að baki árangursríkt samstarf í baráttunni fyrir bættum lífsskilyrðum barna á heimsvísu. Nú leggjum við hér á Íslandi og í Færeyjum okkar lóð á vogaskálarnar í baráttu beggja samtaka gegn stífkrampa,“ segir Dröfn Sveinsdóttir, umdæmisstjóri Kiwanis á Íslandi og í Færeyjum. „Meirihluti mæðra og nýbura sem látast úr stífkrampa búa á svæðum þar sem konur eru fátækar og hafa takmarkaðan aðgang að heilsugæslu og upplýsingum um öruggar barnsfæðingar. Þetta eru mæður og börn sem við megum ekki bregðast.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira