Innlent

Með fíkniefni í nærbuxunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Stefán
Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni, þar sem karlmaður hafði farið inn í bílskúr hjá óviðkomandi fólki.

Þegar lögreglumenn bar að garði hafði húsráðandi stöðvað manninn og hamlaði því að hann kæmist á brott.

Maðurinn tjáði lögreglu að hann hefði farið inn í bílskúrinn til að fá sér að reykja en maðurinn er um tvítugt.

Maðurinn var handtekinn á staðnum og færður á lögreglustöð en hann var greinilega undir miklum áhrifum fíkniefna.

Við öryggisleit á honum fundust fíkniefni í nærbuxum hans, svo og í úlpu sem hann var í. Hann var vistaður í klefa og viðurkenndi svo brotin við skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×