„Skelfileg lífsreynsla sem ég læri af“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. mars 2014 16:41 Á myndinni má sjá Auðunn Inga drekka efni til að draga úr virkni lyfjanna. „
Það var mjög erfitt að fylgjast með honum í sjúkrabílnum á leiðinni til borgarinnar, hann var orðinn svo þreyttur,“ segir Sjöfn Ingvarsdóttir, móðir Auðuns Inga, tæplega fjögurra ára drengs, sem tók róandi lyf fyrir slysni í gær. Það var snemma í gærmorgun að Auðunn Ingi kom til móður sinnar með tómt pillubox og sagði: „haha, ég kláraði allar töflurnar.“ „Gestur á heimilinu átti þetta box og ég varð strax mjög hrædd og hringdi í hann til að komast að því hvað var í boxinu,“ segir Sjöfn. Í ljós kom að sex róandi töflur hefðu verið í boxinu og Sjöfn hringdi umsvifalaust í neyðarlínuna. Þau búa í Hveragerði og þurftu því að fara með sjúkrabílnum alla leið í bæinn. Sjöfn segir að sonur sinn hafi ekki verið líkur sjálfum sér á leiðinni en honum hafi þó fundist spennandi að vera í sjúkrabíl.Auðunn Ingi á spítalanum.Drakk kol til að draga úr virkni lyfjanna Þau mæðgin dvöldu á spítalanum í allan gærdag. Í fyrstu átti að setja sondu í gegnum nefið á Auðunni en það var ekki hægt þar sem í ljós kom að nefkirtlarnir voru svo stórir. Auðunn var heldur ekki neitt sérstaklega sáttur við að láta setja slöngur í gegnum nefið á sér og barðist um. „Hann var kominn með blóðnasir eftir átökin,“ segir Sjöfn. Því var brugðið á það ráð að láta hann drekka efnið sem að sögn Sjafnar kallast kol og á að draga úr virkni lyfjanna. „Hann vildi frekar drekka það þó honum þætti það ógeðslegt og ég get best lýst þessu þannig að þetta minni á tjöru í útliti en er víst ekki vont á bragðið,“ segir Sjöfn. „Hann fékk að drekka þetta úr sprautu sem hann fékk í sjúkrabílnum á leiðinni.“Vona að fleiri læri af þessu Hún segir son sinn hafa verið orðinn góðan í gærkvöldi. „Hann var eldhress og vildi ekki fara að sofa og sagðist vera búinn að hvíla sig,“ segir Sjöfn. Auðunn Ingi mætti svo í leiksskólann í morgun en hann var spenntur að hitta vini sína og sýna þeim hvað hann væri fínn með nýtt tattoo sem hann fékk í verðlaun á spítalanum. „Slysin gera ekki boð á undan sér. Í þessi tilviki var boxið á þannig stað að hann átti ekki að ná til þess en hann prílaði upp á stól og komst þannig í lyfin,“ segir Sjöfn. „Ég mun læra af þessu og það er von mín að aðrir taki þetta til athugunar og geti kannski lært af þessu líka,“ segir Sjöfn. „Þetta var skelfileg lífsreynsla og gott að það fór ekki verr.“
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Sjá meira