Kusu fjóra nýja frisbígolfvelli Jón Júlíus Karlsson skrifar 21. mars 2014 20:30
Reykvíkingar völdu 78 verkefni í kosningunni um betri hverfi í borginni. 300 milljónum verður varið í að koma hugmyndum borgarbúa í framkvæmd og stendur til að reisa fjóra frisbígolfvelli. Þetta er í þriðja sinn sem Reykjavíkurborg stendur fyrir kosningunni um Betri hverfi í Reykjavík. Í lok árs verður búið að verja í heild um 900 milljónum króna í verkefnið. Íbúar Reykjavíkur kjósa um hugmyndir sem þeir hafa sjálfir lagt fram á vef verkefnisins og er kosningin bindandi fyrir Reykjavíkurborg. „Ég hugsa að fólk sé mjög ánægt með að hafa sitt að segja um hvernig hverfi þeirra lítur út,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar. Yfir 400 hugmyndir bárust í ár og er 300 milljónum skipt á milli 10 hverfa eftir íbúafjölda. Reisa á frisbígolfvöll í fjórum hverfum. Stærsta framkvæmdin sem farið verður í á þessu ári er ævintýrasvæði með klifursamstæðu við Gufunesbæ sem kostar um 16 milljónir króna. „Fólki er umhugað um útivistarsvæðin sín. Íbúar í Hlíðunum hafa með sínum hugmyndum gert Klambratún mjög skemmtilegt. Gufunessvæðið er að verða mjög fínt og margar hugmyndir því tengdu verið kosnar á undanförnum árum,“ segir Bjarni. Hann telur að verkefnið Betri hverfi hafi gefist mjög en vel en óljóst sé hvort það haldi áfram á nýju kjörtímabili. „Borgin hefur verið að taka stakkaskiptum með þessum verkefnum. Íbúarnir vita best sjálfir hvar peningunum er best varið og eiga að fá að ákveða það áfram að mínu mati,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira