Sport

Stefán nýr formaður íþróttanefndar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Konráðsson.
Stefán Konráðsson. vísir/stefán
Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskra getrauna og fyrrverandi framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, hefur verið skipaður nýr formaður íþróttanefndar af Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra. Skipunartími síðustu nefndar rann út þann 30. september.

Stefán starfaði í nítján ár hjá ÍSÍ en lét af störfum þar árið 2007.

Hlutverk íþróttanefndar er að veita ráðuneytinu ráðgjöf í íþróttamálum og leggja fram tillögur um fjárframlög til íþróttamála í fjárlögum og úthlutun úr íþróttasjóði.

Nefndina skipa einnig Sigríður Jónsdóttir, Björg Jakobsdóttir, Ingvar S. Jónsson og Hafþór B. Guðmundsson. Varamenn eru Hafrún Kristjánsdóttir, Gunnar Bragason, Örn Guðnason, Jóhanna M. Hjartardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×