Lífið

Arkitektúr og áleggið sem margir hata

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Internetið er stúfullt af skemmtilegum síðum á samfélagsmiðlunum.

Lífið kíkti yfir þrjár góðar sem vert er að fylgjast með.

Instagram

Manrepeller

„Gamansöm síða um alvarlega tísku.“ Þannig lýsir Leandra Medine Instagram-síðu sinni. Hún byrjaði sem bloggari árið 2009 en árið 2012 var hún valin einn af áhrifamestu trendsetturunum af Forbes. Þá kaus tímaritið Time bloggið hennar, Man Repeller, eitt af bestu bloggum ársins 2012. Instagram-síða hennar er full af tísku og full af skrýtlum.

Facebook

Nutella

Þótt ótrúlegt megi virðast er áleggið Nutella, sem fólk annaðhvort elskar eða hatar, með sína eigin Facebook-síðu. Og það sem meira er – tæplega þrjátíu milljón manns líkar við síðuna. Hér er hægt að fræðast um allt og ekkert varðandi Nutella, fá góðar hugmyndir um hvernig má nota það og kynnast öðrum aðdáendum áleggsins.

Pinterest

361 Architecture

Endalausar myndir af fallegri, öðruvísi og frumlegri hönnun – hvort sem það er iðn- eða innanhússhönnun. Arkitektastofan 361 Architecture leggur mikið upp úr því að hanna muni og hús sem eru vistvæn og vel hönnuð. Meðlimir stofunnar eru heldur ekki smeykir við að hrósa þeim sem gera vel eins og sést á Pinterest-síðunni þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.