Pálmar Óli ráðinn forstjóri Samskipa hf. Haraldur Guðmundsson skrifar 4. júní 2014 07:00 Pálmar Óli er vélaverkfræðingur og starfaði hjá Samskipum frá 1998-2011. Vísir/GVA
Stjórn Samskip Holding BV hefur gengið frá ráðningu Pálmars Óla Magnússonar, framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, í starf forstjóra Samskipa hf. Ákvörðunin var kynnt starfsmönnum félagsins í gær. Pálmar mun hefja störf í júlí en hann starfaði áður hjá Samskipum frá 1998 til 2011. Hann mun sjá um flutningastarfsemi félagsins til og frá Íslandi og Færeyjum og allt sem henni tengist.Þrír forstjórar Í síðustu viku kynnti stjórn Samskip Holding BV, yfirstjórn samstæðunnar, áform um skipulagsbreytingar. Samkvæmt þeim verða flutningakerfi samstæðunnar sameinuð undir nafni Samskipa og flutningsmiðlun fyrirtækisins undir Samskip Logistics. Samskip mun sjá um grunnflutningakerfið í Evrópu og þar á meðal flutninga til og frá Íslandi. Daninn Jens Holger Nielsen verður forstjóri Samskipa með aðsetur í Hollandi, eins og kom fram í fréttatilkynningu um breytingarnar. Pálmar mun aftur á móti stýra dótturfélaginu Samskip hf. Ásbjörn Gíslason, sem áður var annar tveggja forstjóra Samskipa, tekur við stöðu forstjóra Samskip Logistics. Hann verður með aðsetur í Hollandi og meðal annars ábyrgur fyrir FrigoCare, frystigeymslum samstæðunnar utan Íslands og Færeyja, dótturfélaginu Silver Sea í Noregi og Samskip IcePack. „Það er verið að skipta þessu upp þannig að Samskip Logistics mun sjá um flutningsmiðlun Samskipa um allan heim sem tekur þá til frystiflutninganna og annarra flutninga þar sem við erum að nota okkar flutningakerfi og kerfi hvers sem er í raun og veru,“ segir Pálmar.Gámafloti Samskipa telur um 19 þúsund gáma.Vísir/GVAHagnaður upp á tvo milljarða „Það sem við erum að gera með þessum skipulagsbreytingum er annars vegar að skerpa áhersluna á áframhaldandi vöxt og viðgang félagsins en ekki síður að tryggja að við séum með skýran fókus á okkar heimamarkað hérna á Íslandi. Við ætlum áfram að veita viðskiptavinum okkar hér heima hagkvæmar heildarlausnir í flutningum og viljum tryggja að þeir njóti góðs af þeim árangri sem við erum að ná erlendis,“ segir Pálmar. „Með aukinni samhæfingu flutningakerfanna til og frá Íslandi teljum við okkur ná kostnaðarlegri hagræðingu og sá möguleiki opnast að viðskiptavinir okkar á Íslandi geti fylgst með og rakið sendingar í gegnum flutningakerfi okkar, ekki aðeins til og frá Íslandi, heldur jafnframt innan Evrópu.“ Samskipasamstæðan hagnaðist um tvo milljarða króna á síðasta ári þegar veltan nam 88 milljörðum. Í tilkynningu félagsins um skipulagsbreytingarnar er tekið fram að spár þess geri ráð fyrir 100 milljarða veltu á þessu ári.Rekur lestarkerfi í Evrópu Í tilkynningunni kemur einnig fram að félagið rekur skrifstofur í 24 löndum í fimm heimsálfum. Gámaflotinn telur um 19 þúsund gáma og um 700 þúsund gámaeiningar eru fluttar með skipum, lestum, bílum og fljótaprömmum á hverju ári. Flutningsmagnið hefur aukist ár frá ári og félagið rekur sem dæmi umfangsmikið lestarkerfi í Evrópu. Starfsmenn eru um 1.400 talsins. „Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað á síðustu áratugum með atvinnulífinu og reynslan af því að þjónusta kröfuharða viðskiptavini hér á landi er grunnurinn að þeirri velgengni sem fyrirtækið hefur áunnið sér,“ segir Pálmar. „Það er hlutverk okkar að sjá til þess að viðskiptavinir komi sínum vörum og aðföngum á milli staða á áreiðanlegan og hagkvæman hátt. Við sinnum þessu hlutverki okkar best með því að hlusta á viðskiptavini og skilja þau viðfangsefni sem þeir eru að fást við. Með því að bjóða áreiðanlegar og hagkvæmar lausnir sem henta þeim þörfum sköpum við verðmæti fyrir okkar viðskiptavini.“ Var staðgengill forstjóraPálmar starfaði eins og áður segir í þrettán ár hjá Samskipum. Árið 2011 var hann ráðinn framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar. Þar hefur hann borið ábyrgð á öllum virkjanaframkvæmdum á vegum fyrirtækisins, frá því ákvörðun um fjárfestingu í virkjun er tekin þangað til hún er tilbúin til afhendingar. „Þegar ég var hér hjá Samskipum var ég í nokkrum framkvæmdastjórastöðum og tók þá þátt í uppbyggingu félagsins erlendis og starfaði meðal annars um tíma sem staðgengill forstjóra Samskipa á Íslandi,“ segir Pálmar. Hann starfaði einnig hjá keppinautnum Eimskip frá 1994 til 1996. Pálmar er menntaður í vélaverkfræði, lauk meistaragráðu í námsgreininni við Universität Karlsruhe í Þýskalandi og er einnig með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er giftur Hildi Karlsdóttur grunnskólakennara. Þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. „Mér finnst rosalega skemmtilegt að vera að koma inn í Samskip aftur. Maður þekkir hversu góður starfsandinn í fyrirtækinu er og hversu samheldinn hópurinn er. Hér er fólk sem er tilbúið til að leggja allt á sig til þess að ná árangri og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í þessum bransa. Ég hef auðvitað fylgst vel með á hliðarlínunni eftir að ég fór enda er þetta skemmtilegur vettvangur.“
Mest lesið Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Neytendur Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Viðskipti innlent Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Viðskipti innlent Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Sjá meira