Lífið

Styður systur sína með töfrabrögðum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hermann Helenuson gerir allt sem hann getur til þess að styðja systur sína.
Hermann Helenuson gerir allt sem hann getur til þess að styðja systur sína. mynd/aðalsteinn
„Ég ætla gera allt til þess að hjálpa systur minni, við erum mjög náin,“ segir hinn 14 ára gamli töframaður Hermann Helenuson. Hann stendur fyrir töfrasýningu fyrir alla fjölskylduna ásamt Töfrahetjunum í Salnum, Kópavogi næstkomandi föstudag.

Sýningin er liður í því að safna fjármagni til að systir hans Karen komist erlendis í aðgerð til að laga hryggskekkju. Slík aðgerð kostar átta milljónir króna. Hann hefur verið ötull að safna fyrir aðgerðinni með því að koma fram í afmælum og ýmiss konar uppákomum. Launin sín setur hann trúfastlega inn á söfnunarreikning systur sinnar og er þegar búinn að safna um 200.000 krónum.

„Töfrahetjurnar eru samblanda af nokkrum einstaklingum sem geta gert ótrúlega hluti. Í töfrahetjunum eru meðal annars Einar Mikael töframaður og Viktoría töfrakona ásamt fleiri hetjum,“ bætir Hermann við. Litla systir hans er einnig hluti af Töfrahetjunum, Lovísa Helenudóttir, en hún er 12 ára gömul. Þau ætla öll að töfra saman og lofa flottri sýningu fyrir alla fjölskylduna. Áhorfendur fá að taka virkan þátt í sýningunni og fá nokkrir heppnir að aðstoða Töfrahetjurnar.

Hermann segir að lífið hafi breyst að einhverju leyti eftir Ísland got talent-þættina. „Ég er þakklátur að hafa fengið þetta frábæra tækifæri. Það eina sem hefur breyst er kannski að fólk þekkir mann betur. Ég er samt enn þá bara með sömu vinum mínum í skólanum og líður vel,“ segir Hermann spurður út í breytingarnar. Eru ekki margir að spyrja út í töfrabrögðin? „Jújú, en það má ekki segja neitt,“ bætir Hermann við og hlær.

Allur ágóði af miðasölu rennur óskertur til að safna fyrir aðgerð Karenar og fer miðasala fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×