Týrólatónar léku um skíðafólk í Oddskarði Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 24. apríl 2014 10:00 Í Hlíðarfjalli var aðeins opið á skírdag og annan í páskum auk nokkurra klukkustunda á páskadag. Mynd/Myndasafn Hlíðarfjalls
Þúsundir renndu sér á skíðum um páskana í Hlíðarfjalli fyrir norðan, Tungudal og Seljalandsdal fyrir vestan og í Oddskarði fyrir austan þar sem besta veðrið var. „Við erum himinlifandi. Loksins kom sól á Austurlandi. Það er búið að vera skýjað mestallan veturinn og lítið hægt að hafa opið,“ segir Dagfinnur Smári Ómarsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Oddskarði, þar sem um eitt þúsund manns að meðaltali renndu sér á hverjum degi alla páskana.Dagfinnur smári ÓmarssonDagfinnur segir marga hafa komið frá Reykjavík og að norðan og skemmt sér á skíðum með heimamönnum. „Ég held að allir hafi fengið að sofa einhvers staðar.“ Þótt ekki hafi verið fengin hljómsveit frá Týról til að skemmta mönnum um páskana eins og gert hefur verið þrisvar sinnum áður, var leikin tónlist frá svæðinu í brekkunum. „Síðast þegar hljómsveit kom hingað frá Týról var árið 2010. Núna fengum við tónlistina af Spotify. Við reynum svo að fara í týrólabúninga,“ segir Dagfinnur og bætir því við að brettakvöld, flugeldasýning og páskaeggjamót hafi notið mikilla vinsælda gesta í Oddskarði. Guðmundur Karl Júlíusson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir menn þar sæmilega sátta með páskavertíðina. „Maður glímir aldrei við veðrið. Við urðum að hafa lokað á föstudaginn langa, laugardag og mestallan páskadag vegna suðvestanáttar, sem hefur ekki látið sjá sig hér í allan vetur nema þessa þrjá daga. Hér var hins vegar opið á skírdag og annan í páskum og þá renndu sér um 2.000 manns hvorn daginn. Það voru óvenjumargir hér á annan í páskum en menn komu snemma þann dag til að geta rennt sér áður en þeir héldu heim á leið.“ Skíðavikan á Ísafirði tókst ljómandi vel, að sögn Gauts Ívars Halldórssonar, forstöðumanns skíðasvæðisins. „Það var að vísu lokað hér á föstudaginn vegna leiðindaveðurs. Það gekk svo á með éljum á laugardag og sunnudag en það var bjart á milli og hægt að hafa opið. Um venjulegar helgar eru hér 200 til 300 manns og í mesta lagi 400 á skíðum en núna voru að meðaltali um 800 manns í brekkunum í Tungudal og Seljalandsdal þessa daga sem opið var. Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkur. Hér gátu menn skíðað á daginn og farið á tónleika á kvöldin,“ segir Gautur. Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu voru lokuð alla páskana vegna veðurs.Að loknu páskaeggjamóti Aldís María Gylfadóttir og Hulda Lind Sævarsdóttir með páskaegg í Oddskarði. Mynd/Gylfi Magnús Jónasson
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira