Verkfall hefði áhrif á starfsemi spítala Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar 16. apríl 2014 07:00 Fyrirhugað verkfall Háskólakennara mun hafa alvarleg áhrif á starfsemi Landspítalans Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrirhugað verkfall háskólakennara mun hafa alvarleg áhrif á starfsemi Landspítalans ef af verður. Hátt í 50 kandídatsnemar í læknisfræði geta ekki hafið störf á Landspítalanum á tilsettum tíma, verði af verkfallinu, sem myndi þýða skort á læknum innan spítalans í sumar. Pétur Sólmar Guðjónsson, fulltrúi 6. árs nema í stjórn Félags læknanema, segir bæði nemendur og kennara uggandi yfir málinu.Pétur Sólmar Guðjónsson„Forsenda þess að komast inn á kandídatsárið og hefja störf hjá spítalanum er að ljúka lokaprófinu. Við erum 50 kandídatsnemar og flest okkar gera ráð fyrir að hefja störf strax í júní,“ segir Pétur. Ef prófin frestast þá frestast ráðningar, ef af verkfalli verður verða engin lokapróf. Stjórn Félags læknanema hefur verið í sambandi við forseta læknadeildar í þeirri von að finna upp einhver neyðarúrræði til að grípa til ef þessi staða kemur upp. „Þetta verður stór biti fyrir samfélagið enda hefur verkfallið áhrif á störf lækna, hjúkrunarnema, lífeindafræðinga og sjúkraliða svo dæmi séu nefnd,“ segir Pétur. Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild Háskólans, tekur undir áhyggjur læknanema og segir stöðuna grafalvarlega.Magnús Karl Magnússon segir stöðuna krítíska bæði fyrir nemendur og spítalannFréttablaðið/vilhelm„Staðan er krítísk fyrir nemendur og fyrir spítalann. Við í háskólanum erum að leita leiða til að útskrifa þessa nemendur en við höfum því miður engin svör,“ segir Magnús. „Við verðum að fara eftir öllum reglum sem gilda um verkföll í samráði við yfirmenn háskólans svo það er ekki mögulegt að læknar hefji störf án þess að þreyta prófið. Prófið er forsenda þess að útskrifast frá Læknadeild og geta hafið störf sem læknakandídat,“ segir Magnús. „Við í læknadeild viljum koma á framfæri hvatningu til yfirvalda um að gera sér grein fyrir alvarleika málsins. Ef háskólakennarar leggja niður störf á prófatíma eru ekki aðeins hagsmunir einstaklinga í húfi og hvort þeir fái prófskírteini, heldur reiðir þjóðfélagið sig á að útskrifa fólk með háskólagráður. Útskriftarnemar eru mikilvægur mannafli fyrir heilbrigðiskerfið.“ Boðað hefur verið til samráðsfundar fulltrúa Landspítala og háskólans eftir tvær vikur en þá verður staðan rædd.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira