Neytendastofa kemst ekki út á land Sveinn Arnarsson skrifar 15. apríl 2014 06:45 Tryggvi Axelsson
Neytendastofa hefur ekki annast eftirlit utan 100 km radíuss frá höfuðborgarsvæðinu síðan 2008 vegna niðurskurðar þrátt fyrir skyldur um að tryggja öryggi og réttindi neytenda. Eftirlit Neytendastofu snýr að verðmerkingum í verslunum og löggildingum mælitækja svo sem voga í verslunum og hjá fyrirtækjum sem og bensíndælna. Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, segir þetta alvarlegt mál. „Skorið hefur verið niður í fjárframlögum til Neytendastofu á síðustu árum og það hefur bitnað helst á landsbyggðinni. Neytendastofa er ekki höfuðborgarstofa, hún er stjórnvald á landsvísu og verður að starfa sem slík.“ Tryggvi telur að úrbóta sé þörf. „Þetta er alvarleg staða og þarft er að sníða stofnuninni þann stakk að hún geti sinnt landinu öllu en ekki aðeins höfuðborgarbúum og nærsveitum hennar“ „Ég er algjörlega sammála því að eftirlitið er á landsvísu og á að vera á landsvísu. Stofnunin verður að fá tryggt fé til að sinna skyldum sínum. Það sýnir sig á höfuðborgarsvæðinu að í hvert sinn sem við förum í eftirlitsferðir kemur eitthvað út úr ferðum okkar neytendum til hagsbóta og að þörf er á virku eftirliti af okkar hálfu. Því má segja að staða neytenda utan höfuðborgarsvæðisins sé að einhverju leyti örlítið viðkvæmari í ljósi ástandsins,“ segir Tryggvi. Stofnunin hefur frá hruni 2008 sinnt verðmerkingum á höfuðborgarsvæðinu og hefur í stöku tilvikum sinnt eftirliti norðan Hvalfjarðarganga, á Akranesi og í Borgarnesi, og austan Hellisheiðar, í Hveragerði og á Selfossi. Á öðrum stöðum landsins hefur stofnunin tekið við ábendingum frá neytendum og reynt að framfylgja skyldum sínum með því að senda bréf á viðkomandi staði með beiðni um úrbætur og lagfæringar.
Mest lesið Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Appelsínugular viðvaranir og yfir 45 metrar á sekúndu á Kjalarnesi Veður Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Innlent Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Erlent Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Handtóku mann fyrir að stela dekkjum Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Harmi slegin vegna fjölda tilkynninga af leikskólum Ráðherra í áfalli, rógsherferð og æsispennandi kosningar Ester Bíbí leiðir Vinstrið í Hafnarfirði Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sjá meira