Bera hag Tjarnarinnar fyrir brjósti Freyr Bjarnason skrifar 4. apríl 2014 17:13 Meðlimir í Fuglaverndarfélagi Íslands hittast í Vatnsmýrinni í dag. Fréttablaðið/Pjetur
Meðlimir í Fuglaverndarfélagi Íslands ætla að fjölmenna í friðlandinu í Vatnsmýrinni í dag og tína þar rusl og fleira. „Hluti af friðlandinu er að breytast í skóglendi. Það þarf að klippa runna og fjarlægja trjáplöntur af hluta svæðisins. Þetta á að vera votlendi, ekki skógur. Síðan eru síkin og bakkarnir hálffull af rusli,“ segir Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands, aðspurður. „Ég held að mikilvægið í þessum litla viðburði sé að vekja fólk til vitundar um að framtak þess skiptir máli. Það eiga allir að bera hag Tjarnarinnar í brjósti. Ekki sitja bara þegjandi, heldur ef þeir mögulega geta að taka til hendinni og láta sig málið varða,“ segir Ólafur Karl. Fuglavernd stofnaði í fyrra með Norræna húsinu hópinn Hollvini Tjarnarinnar sem hefur þann tilgang að hlúa að lífríki Reykjavíkurtjarnar. „Við áttum ágæta stund í fyrra. Ef þetta heldur áfram eru menn að hugsa stærra en bara að hirða rusl. Eitt af þeim verkum er að eyða hvönninni í Torfinnshólmi. Kríurnar verpa þar en hvönnin er nokkurn veginn að úthýsa henni,“ segir Ólafur. Í nýlegri skýrslu kom fram að aldrei frá upphafi mælinga á fuglalífi Tjarnarinnar hafa andapör verið jafn fá og í fyrra. „Ástandið hefur verið mjög dapurlegt en það eru metnaðarfull plön í gangi. Borgin hefur verið eins og sofandi risi gagnvart Tjörninni en núna er eins og hann sé að fara að rumska.“
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira