Fangelsi enginn staður fyrir börn Snærós Sindradóttir skrifar 3. apríl 2014 08:47 Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafangelsinu, segir að blöndun karla og kvenna í fangelsum sé óæskileg. VÍSIR/GVA
Orðsending til fanga í Kópavogsfangelsi Verði áframhald á því að reka þurfi karlfanga út af kvennaklefum eða kvenfanga út af karlaklefum, þá mun það leiða til skriflegra áminninga eða annarra agaviðurlaga og síðan til flutnings viðkomandi karlfanga úr Kópavogsfangelsi á Litla-Hraun. Það verður ekki liðið áfram að fangar í fangelsinu brjóti ítrekað þessa meginreglu. Útprentað blað með þessum skýru skilaboðum hangir við inngang „kvennagangsins“ í Kópavogsfangelsi. Við erum stödd á efstu hæð þess húss sem eitt sinn hýsti Unglingaheimili ríkisins en hefur gegnt hlutverki eina kvennafangelsis Íslands í 25 ár. Gangurinn líkist frekar heimavist en fangelsi, það eru engar lúgur á rammgerðum járnhurðum eins og sjást í kvikmyndum og fangarnir ganga lúnir um með tannburstann sinn í morgunsárið. Mér liði eins og ég væri stödd í sumarbúðum ef ekki væri fyrir það að heimsókn minni í fangelsið er tekið með flóttalegum augum og það er engin hress hrokkinhærð kona að vekja fangana með kristilegu glamri á gítar. Ég er meðvituð um að ég sé að ryðjast inn á þeirra allra heilagasta, hnýsast þar sem ég á ekki að vera að hnýsast.Karlar í kvennafangelsiÞað er lýsandi fyrir Kvennafangelsið í Kópavogi að fyrsti fanginn sem við sjáum er húðflúraður karl. Hann er einn af fimm körlum sem dvelja í fangelsinu nú um stundir en sex konur eru í fangelsinu. Hlutfall kvenna og karla í fangelsinu er breytilegt en oftar en ekki eru karlarnir fleiri en konurnar. Nú er beðið eftir einum fanga til viðbótar. Karlarnir ganga kokhraustari um fangelsið. Þeir eru til í að spjalla og hafa ekki áhyggjur af blaðamanni og ljósmyndara sem eru komnir til að skoða fangelsið og allan aðbúnað. Heimsókn okkar hefur engin áhrif á þá. Engir englar í hörðum heimi Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafangelsinu, segir að blöndun karla og kvenna í fangelsum sé óæskileg. „Hingað koma konur sem hafa upplifað allan fjandann af hendi alls konar karla áður en þær koma í fangelsið. Svo eru þær lokaðar inni með nákvæmlega sömu týpum hér.“ Þeir karlar sem eru sendir til dvalar í kvennafangelsið eru valdir sérstaklega. Þeir eiga ekki mjög langt eftir af fangelsisvistinni og hafa ekki verið dæmdir fyrir kynferðisbrot. „En þetta eru engir englar,“ segir Einar. „Þeir hafa hrærst í sama heimi og þessar konur og þar hefur ýmislegt gengið á.“ Enginn aðskilnaður er í fangelsinu enda býður húsnæðið einfaldlega ekki upp á það. Hinn svokallaði „kvennagangur“ er ekki bannsvæði fyrir karla en körlum og konum er óheimilt að loka sig af hvorum á klefum annarra. „Þegar fólk er tekið úr harðri neyslu og lokað inni getur það verið mjög tilfinningalega opið. Það er eiginlega allt galopið. En við reynum að vera vakandi fyrir samdrætti fanganna og sendum karlana þá burt ef slíkt er að eiga sér stað,“ segir Einar. Fangarnir hafa útbúið lóð til lyftinga úr kókflöskum. Öll líkamsræktarlóð eru bönnuð í fangelsinu.Vísir/GVANurla saman fyrir tóbakiKarlar og konur vinna saman að þeim verkefnum sem í boði eru en tímakaupið í Kvennafangelsinu er 380 krónur. Laun í öðrum fangelsum geta verið hærri, eða allt upp að 415 krónum, því þar er í boði fjölbreyttari vinna sem gefur meira í aðra hönd. Þennan morguninn sitja þrír karlar og ein kona við að líma ráðstefnumöppur fyrir Íslenska erfðagreiningu. „Við erum að gera þetta fyrir hann Kára,“ segir fangi og skellir upp úr. „Við söfnum laununum saman til að eiga fyrir sígarettum og nammi.“ Hann reykir rúllutóbak og segir að hann hafi kannski efni á einum poka á viku. Verkefni fanganna eru margvísleg og þau sýna mér sætuefni sem þau hafa verið að sjá um að pakka sem og barmmerkjavélar sem ég ímynda mér að hafi nýst vel í kosningabaráttum síðastliðinna ára. „Við fáum tilboð frá fyrirtækjum um að taka að okkur verkefni,“ segir Einar varðstjóri. „Vinnan verður að vera tiltölulega auðveld og henta okkar aðstöðu.“ Verkfallið hefur víðtæk áhrifFöngum ber skylda til að vinna hálfan vinnudag en þeir geta stundað nám sem kemur þá á móti vinnuskyldunni. Námið fer fram við Menntaskólann í Kópavogi en hefur legið niðri síðastliðnar þrjár vikur vegna verkfalls kennara. Sú staða er uppi í öllum fangelsum landsins. „Námið er gríðarlega mikilvægt. Ekki bara þekkingin sem fæst með því heldur stoltið. Það er gott fyrir þau að geta barið sér á brjóst og sagt „ég kláraði þetta“ því þetta eru oftast einstaklingar sem kerfið hefur alveg brugðist. Þau þurfa að finna að hér hafi einhver tíma og þolinmæði til að standa með þeim í gegnum námið og finna að þau geta þetta alveg,“ segir Einar. „Aðstaðan okkar hentar ekki til stórræða en við getum vel tekið að okkur ýmiss konar smærri verkefni, svo sem við að merkja póst sem á að fara til sendingar. Við vinnum bæði hratt og örugglega,“ segir Einar. Fangarnir bera honum vel söguna og segja að hann vinni til jafns við þá þegar tími gefst til. Þau virðast Einari þakklát og hann gerir sitt besta til að vera vinur þeirra. Við þessar aðstæður ræða fangar við gesti í fyrsta sinn sem þeir koma. Þannig hefur tekist að koma í veg fyrir fíkniefnainnflutning.Vísir/GVATaka fyrstu skrefin í fangelsiKvennafangelsið í Kópavogi er í miðri íbúðabyggð. Við hlið fangelsisins er leikskóli og það glymur í börnum í útivist inn í fangelsið. „Það var hér einu sinni barn í tvö ár. Móðirin sat inni í tvö og hálft ár og var ólétt þegar hún kom í fangelsið,“ segir Einar. Móðirin fékk leyfi til að fylgja barninu sínu á leikskólann á hverjum degi og svo sneri hún aftur til baka í fangelsið. „Fangelsi er enginn staður fyrir börn. Við viljum helst ekki hafa börn hér inni,“ segir Einar en bætir við að barnaverndarnefnd fylgist mjög vel með þeim börnum sem dvelja í fangelsinu en hann áætlar að um tuttugu börn hafi dvalið í lengri eða skemmri tíma í fangelsinu. „Dínamíkin hérna breytist samt um leið og það er barn í húsinu. Það tipla allir á tánum og sýna sína bestu hegðun.“ Hann segir að þrátt fyrir að starfsmenn viti að fangelsi sé ekki góður staður fyrir börn að alast upp á, þá sé erfitt að kveðja þau. „Börnin hafa dvalið hér síðan þau voru mjög ung, og jafnvel frá fæðingu. Við starfsmenn bindumst þeim eðlilega miklum tilfinningaböndum. Það er ekki langt síðan héðan fór lítill strákur sem var hvers manns hugljúfi og það var virkilega erfitt að segja bless við hann.“ Nýtt fangelsi verður bylting Húsakostur Kvennafangelsisins hefur verið gagnrýndur og þykir mjög ófullnægjandi. „Við teljum niður dagana þar til við komumst á Hólmsheiði,“ segir varðstjórinn á meðan hann sýnir mér stiga fangelsisins. „Það er beinlínis hættulegt að hafa fangelsi á þremur hæðum með aðeins tvo fangaverði á vakt hverju sinni.“ Beðið hefur verið eftir nýju öryggisfangelsi í mörg ár en fyrsta skóflustungan að fangelsi á Hólmsheiði var loks tekin fyrir sléttu ári. Þar munu konur hafa séraðstöðu og þurfa ekki að blandast körlunum í sama mæli og nú er óhjákvæmilegt. Hér sést læknastofan í Kvennafangelsinu. Snúrurnar að öllu rafmagnstengdu eru við vegginn, yfir sjúkrarúminu.Vísir/GVALæknisaðstoð í kústaskápnumSamkvæmt lögum skal föngum boðin sambærileg heilbrigðisþjónusta og almennt gildir í landinu. Heilbrigðisaðstaða Kvennafangelsisins er þó kölluð kústaskápurinn og er það um margt réttnefni. Um ræðir litla stofu sem er inn af draslaralegri geymslu. „Þetta er auðvitað ekki í lagi, en þetta var eina herbergi hússins sem hentaði svo ekki væri hægt að komast í lyfjaskápinn,“ segir Einar. Kústaskápurinn er lítið gluggalaust herbergi í kjallara hússins. Einar segir mér að lofthæð herbergisins sé ólögleg og bendir á snúrur í einu horninu. „Hér er í raun allt öryggiskerfi fangelsisins, allar símalínur, internet og rafmagnið. Það er ekki gott að þurfa að hafa þetta svona.“ Líkamsræktaraðstaða fanga er jafnframt úr sér gengin. „Þetta er svo gamalt að það er teipað saman,“ segir Einar og bendir á skíðavél í einu horninu. Á gólfinu standa fjórar stórar gosflöskur sem límdar hafa verið saman. Öll laus lóð eru bönnuð í fangelsum landsins en það er ljóst af búnaðinum að fangarnir deyja ekki ráðalausir. „Við fjarlægjum þetta nú venjulega samdægurs, en þeir hafa gleymt þessu hér í gær,“ segir Einar. „Vinirnir“ koma með dópiðHeimsóknarrými fangelsisins er jafnframt í kjallara byggingarinnar. Aðstandendur fanga geta komið í svokallaða snertiheimsókn en þá er heimsóknin eftirlitslaus í tvær klukkustundir. Jafnframt er þar aðstaða til að ræða saman á bak við gler. „Við notum glerið þegar vinir fanga eru kannski að koma í fyrsta skipti, svona á meðan við erum enn að átta okkur á viðkomandi.“ Einar segir að með þeim hætti hafi tekist að koma í veg fyrir eiturlyfjainnflutning sem annars hefði átt sér stað. „Svokallaðir vinir sem eru kannski bara komnir til að færa föngum dóp láta ekki sjá sig aftur ef fyrsta heimsókn er bara á bak við gler og spjallið fer fram í gegnum síma.“ Einar segir þó að síminn sem nýttur er í heimsóknarviðtölin sé ekki hleraður af fangelsinu. Um er að ræða beina línu þar sem allt er rætt án afskipta fangelsisins. Í garðinum er nýleg skjólgirðing sem kemur í veg fyrir að fangarnir sjáist í útivistinni. Í garðinum er einnig matjurtagarður.Vísir/GVAGlápa í gegnum girðinguna Vegna staðsetningar Kópavogsfangelsis eru fangar berskjaldaðir fyrir forvitnum augum þegar þeir fara í útivist. Fyrir nokkrum árum var brugðist við þessu með því að klæða vírgirðinguna með strigapokum. „Það er eiginlega eina skiptið sem við höfum fengið kvartanir frá nágrönnum okkar. Pokarnir slógust í girðinguna og voru ekki mikil prýði,“ segir Einar. Pokarnir voru því fjarlægðir aftur. Í fyrra var reistur skjólveggur innan girðingarinnar sem dugir til að gefa föngunum nokkurra fermetra svæði án þess að þeir sjáist. „Hann Ögmundur lét gera þetta,“ segir Einar, en ég furða mig þó á að nýja girðingin hafi ekki verið látin ná út að jöðrum lóðarinnar svo föngum bjóðist stærra pláss án þess að þekkjast. „Þetta snýst allt um peninga. Þessi kostaði örugglega milljón og þeir tímdu ekki meiru í fangelsið.“ Mega ekki hringja í fjölmiðla Samkvæmt tilkynningu við þá síma sem fangelsið hefur til afnota er föngum óheimilt að hringja í fjölmiðla, lögreglu og önnur fangelsi. Einnig er þeim óheimilt að hringja í dómstóla, ráðuneyti eða Fangelsismálastofnun. Símtöl við þessa aðila þurfa að fara fram með sérstöku leyfi varðstjóra. Fangi sem segist losna út eftir níu daga hefur greinilega setið á einhverri sögu því hann tekur niður vinnunúmerið mitt og vill fá að hringja inn frétt þegar hann losnar út. Hann segist hafa frá ýmsu að segja. Miklu betra en Litla-HraunKarlkynsfangar hafa yfirleitt dvalið í öðrum fangelsum og verið færðir í Kvennafangelsið þegar þeir hafa sýnt af sér góða hegðun. Aðspurðir segja þeir að Kópavogsfangelsi sé það besta sem þeir þekkja. „Það er best að vera hjá Einari,“ segja fangarnir, „Þetta er miklu betra en Hraunið.“ En staðan er önnur fyrir konurnar í fangelsinu. Þær hafa ekki tækifæri á tilfærslu og ef kona hlýtur fangelsisdóm á Íslandi býðst henni ekki að skipta fangelsisvistinni niður á mismunandi fangelsi. Þær þekkja ekkert annað en veggi Kvennafangelsisins. Í 25 ár hefur þessi staða verið uppi í Kvennafangelsinu og oft borið við að svo fáir kvenfangar séu á Íslandi að vandi þeirra sé ekki aðkallandi. „Ég held að dómstólar séu oft meðvirkir með konum sem fremja glæpi,“ segir Einar að lokum. „Bæði vegna þess að þær þurfa oftar að sjá um mjög ung börn, en líka vegna þess að hér er allt blandað. Allar konur koma hingað inn, hvort sem þær fremja ofbeldisbrot eða fjárdrátt. Það er bara ekkert annað í boði.“
Mest lesið Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Innlent Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Innlent Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Innlent „Kynlífsdúkka“ af ungu barni meðal gagna máls gegn fyrrverandi ráðherra Erlent Biðjast ekki afsökunar Innlent Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Innlent Telja Rússa hafa truflað flugvél forseta framkvæmdastjórnar ESB Erlent Vara við því að Kennedy ógni heilsu landsmanna Erlent Rúmlega sex hundruð látnir eftir skjálfta í Afganistan Erlent Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Einfaldasta lausnin að bæta kjör geislafræðinga Veitur vara við svikaskilaboðum Áhersla lögð á andlega líðan eldra fólks sem sé lítið rædd Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Ákærður fyrir að bera sig ítrekað Segir nýtt kerfi stórbæta kjör lífeyrisþega Með á þriðja þúsund pilla í nammipokum Bein útsending: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi Það sé skammtímalausn að lengja opnunartíma og senda fólk erlendis í geislameðferð Snærós ráðin framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Með óspektir og réðst á lögreglumann Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Biðjast ekki afsökunar Ferðamaður tekinn á tvö hundruð kílómetra hraða Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við framúrakstur Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Netþrjótar hirða meira en hálfan milljarð og verktaki bendir á borgina Gamall Volvo stóð í ljósum logum í Breiðholti Varðturnarnir á bak og burt Mikill hugur hjá skógræktarfólki um allt land Fer hörðum orðum um „óveðursskýið“ Jóhann Pál Boðar sumarveður inn í september Google Maps beinir ökumönnum um Krýsuvíkurleiðina vegna villu Uppsagnir vegna veiðigjalda, hamfarakólnun og fagnaðarlæti Flokks fólksins Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert „Mikill léttir“ af nýjum þingflokksformanni Hafstraumar, menntun, húsnæðisverð og pólitíkin í haust á Sprengisandi Sjá meira