Rukka stjórnmálaflokka um stefnu í innflytjendamálum Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 3. apríl 2014 10:12 Gerður Gestsdóttir situr í teymi um málefni innflytjenda og stendur fyrir málþingi um stefnu stjórnmálaflokka í þessum málaflokki.
Í Reykjavíkurborg voru ríflega tvö þúsund innflytjendur án ríkisborgararéttar á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2010. Mjög líklega hefur orðið fjölgun í þessum hópi á kjörskrá fyrir kosningar í vor þar sem fleiri hafa náð búsetuviðmiðinu og öðlast þar með kosningarétt. Vegna þessa stækkandi hóps stendur teymi um málefni innflytjenda fyrir morgunverðarfundi í næstu viku með frambjóðendum til borgarstjórnar þar sem þeir verða spurðir hvað þeirra flokkur hyggst gera í málefnum innflytjenda. „Við viljum ná málefnum innflytjenda á dagskrá í kosningunum. Það er ekki til neinn þrýstihópur innflytjenda en mörg gífurlega mikilvæg mál snerta þá sérstaklega, eins og atvinnumál og menntamál barna þeirra,“ segir Gerður Gestsdóttir, sem er ráðgjafi innflytjenda hjá Vinnumálastofnun. „Ég hef aldrei séð kosningarloforð sem snúa beint að innflytjendum eða stjórnmálaflokka reyna að höfða til þeirra sem hóps og því köllum við eftir því á þessum fundi,“ segir hún. Á fjölmenningarþingi borgarinnar árið 2012 kom fram að meirihluti þátttakenda á þinginu taldi sig ekki geta fylgst nægilega vel með stjórnmálum vegna takmarkaðs aðgangs að upplýsingum. Bent var á að þýðingar á vefsíðum stjórnmálaflokka þyrftu að vera betri og endurspegla íslenska textann í stað úrdrátta.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira