Innlent

Flutningabílar brjóta leirtau á heimili í Vík

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Mikill titringur er á Austurvegi frá umferð flutningabíla sem fara um Vík.
Mikill titringur er á Austurvegi frá umferð flutningabíla sem fara um Vík. Fréttablaðið/Heiða
Tveir íbúar á Austurvegi í Vík í Mýrdal segja svo mikinn titring vegna hraðaksturs flutningabíla fram hjá heimili þeirra að komið hafi fyrir að leirtau brotni í glerskáp. Eins sé farið að bera á sprungum í húsinu.

Kom fram á sveitarstjórnarfundi þar sem málið var rætt að sveitarstjórinn hefði ítrekað rætt við Vegagerðina án þess að úrbætur hefðu verið gerðar. Óþægindin segja íbúarnir vera sérlega slæm eftir klukkan 21 á kvöldin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×