Ómar vill bæjarfulltrúa í fullt starf Freyr Bjarnason skrifar 26. mars 2014 07:00 Hart var deilt um tillögu Ómars á bæjarstjórnarfundinum í gær. Hér er bæjarstjórinn, Ármann Kr. Ólafsson, í pontu. Fréttablaðið/Stefán
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, lagði í gær fram tillögu um að starfshlutfall bæjarfulltrúa verði hækkað úr 27 prósentum í 100 prósent. Fyrri tillaga Ómars, sem ekki var lögð fram í bæjarráði, hljóðaði upp á að hlutfallið yrði 100 prósent af þingfararkaupi sem hefði þýtt hækkun launa úr 170 þúsund krónum á mánuði í 630 þúsund. Fyrir vikið varð mikið fjaðrafok á bæjarstjórnarfundi í gær eftir að sú tillaga hafði birst fyrst á síðunni Kjarninn.is. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Ómar hafa gert mistök þegar hann afritaði texta frá skýrslu starfshóps um bætt vinnubrögð bæjarstjórnar Kópavogs þar sem orðið „þingfararkaup“ var að finna. Það hafi aldrei átt að vera í tillögu hans. „Það var aldrei hugsunin að hækka launin, heldur fyrst og fremst að skilgreina starfið sem fullt starf. Maður á ekki að drýgja tekjurnar með því að vera í bæjarstjórn heldur eiga menn að vera þar í fullu starfi,“ segir Ómar, sem taldi réttast að leggja tillöguna fram núna þar sem meirihluti bæjarstjórnarfulltrúa muni hverfa frá störfum á næstunni. Breytingin á að taka gildi um næstu áramót. Aðalsteinn Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi tillöguna harðlega. „Ef við samþykkjum að breyta þessu hlutfalli erum við að opna á óútfylltan tékka.“ Á fundi bæjarstjórnar var samþykkt að vísa tilllögu Ómars til forsætisnefndar Kópavogs.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Sjá meira