Skammsýni að sameinast ekki HÍ Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. mars 2014 07:00 Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri. Í viðtali við Skessuhorn í gær segir Ágúst Sigurðsson rektor á Hvanneyri ljóst að draga þurfi verulega saman seglin í skólastarfinu. Fréttablaðið/GVA
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri (LBHI) verður af innviðafjárfestingu upp á tæpar 300 milljónir króna næstu tvö ár sem ráðgerð var í tengslum við sameiningu skólans við Háskóla Íslands (HÍ). Skólanum er í staðinn gert að hefja þegar endurgreiðslu á ríflega 760 milljóna króna framúrkeyrslu fjárlaga síðustu ár. Aðstandendur skólans hafa bent á að á móti framúrkeyrslunni komi eignir í hluta- og skuldabréfum upp á um um 300 milljónir króna. Heimildir blaðsins herma að skólanum verði gert að standa þegar skil á þeim fjármunum í ríkissjóð og síðan eigi að semja um hvernig staðið verði að endurgreiðslu þess sem út af stendur.Ágúst Sigurðsson rektor á Hvanneyri.Fréttablaðið/GVAFyrirhuguð sameining LBHÍ og HÍ mætti andstöðu hjá stórum hluta aðstandenda skólans, sveitarstjórn í Borgarfirði og Bændasamtökum Íslands, auk þingmanna Norðvesturkjördæmis. Sjálfstæði skólans var talið vega þyngra en mögulegur ávinningur af sameiningu. Fram kom í fréttamiðlinum Skessuhorni í gær að Ágúst Sigurðsson, rektor LBHI, hafi fyrir helgi sent starfsólki og nemendum tilkynningu um að ekki yrði af sameiningunni. Niðurstaðan sé honum vonbrigði og ljóst að skólinn þurfi ap draga saman seglin. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir niðurstöðuna ekki hafa áhrif á áform um sameiningu annarra háskóla. Hann hafi hins vegar haft metnað til þess að styrkja kennslu og vísindastarf á Hvanneyri með sameiningu við HÍ. Samlegðaráhrif í rannsóknum og kennslu hefðu orðið mikil, auk þess sem komi hefði átt á fót nýrri stofnun í matvælarannsóknum undir forystu skólans og í samstarfi við Matís. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.Fréttablaðið/GVA„En hér tel ég að hafi því miður orðið ofan á sjónarmið sem ég tel skammsýn og hvorki til þess fallin að styrkja héraðið né nám og vísindastarfsemi í búvísindum,“ segir Illugi. Þó sé ekki ekki skynsamlegt að „ganga yfir heimamenn þannig að stórsjái á“ og knýja fram sameiningu. Illugi segir tvo kosti hafa verið uppi, annars vegar sameiningu og hins vegar að skólinn lagi sig að þeim ramma sem honum hafi verið settur í fjárlögum. „Ég get ekki sett meiri tíma í þetta verkefni vegna þess að liðið er á árið og við þurfum að halda okkur innan fjárlaga þessa árs. Því þarf skólinn að gríp til nauðsynlegra aðgerða til að ná fram þeirri hagræðingu sem honum er ætlað,“ segir Illugi. Skipuleggja þurfi námsframboð og aðra þætti fyrir næsta haust þannig að fast land sé undir fótum varðandi starfsemi skólans. Þá hafi hann kallað eftir því við rektor á Hvanneyri að útfærst verði mjög hratt hvernig skólinn standi skil á þeim fjármunum sem hann hafi fengið umfram fjárheimildir síðustu ár. „Skilaboð fjárlaganefndar eru mjög skýr í þeim efnum.“ Málefni skólans voru rædd í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær, en þá spurði Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, menntamálaráðherra út í málefni skólans.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira