Sigraði í Mottumars með miðasölu á ball 22. mars 2014 07:15 Vinir Villa tóku við verðlaununum í lokahófi Mottumars 2014 í Hörpu í gær. Vísir/Daníel „
Allur ágóði af ballinu sem ég held í kvöld rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins,“ sagði Páll Sævar Guðjónsson þegar hann hafði sigrað í einstaklingskeppni Mottumars 2014 í gær. Páll safnaði samtals 1.069.000 krónum. Hann sigraði í keppninni með sex hundruð þúsund króna áheiti um klukkustund áður en söfnunarátakinu lauk.Páll Sævar Guðjónsson.„Ég stend fyrir árgangaballi fyrrverandi nemenda úr Hagaskóla á veitingastaðnum Rúbín og þessi upphæð er brot af því sem kemur inn í miðasölunni,“ segir Páll og tekur fram að upphæðin geti á endanum orðið enn hærri. Páll greindist sjálfur með krabbamein í ristli í janúar 2012, þá 42 ára gamall. Hann er nú laus við meinið en fer í reglubundið eftirlit. Páll starfar sem skrifstofustjóri og er einnig vallarþulur á Laugardalsvelli og KR-vellinum í Frostaskjóli. Liðið Vinir Villa fór með sigur af hólmi í liðakeppni söfnunarátaksins. Meðlimir liðsins söfnuðu 1.223.000 krónum en þeir voru allir vinir Vilhjálms Óla Valssonar, sigurvegara Mottumars 2013, sem lést af völdum krabbameins í lok mars í fyrra. „Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi komið á óvart enda áttum við ekki von á því að þetta færi yfir milljón krónur,“ segir Hreggviður Símonarson, liðsstjóri Vina Villa. Hann segir upphaflegt markmið liðsins hafa hljóðað upp á eitt hundrað þúsund krónur en það var síðan hækkað upp í 1.639.000 krónur, sömu upphæð og Vilhjálmur safnaði árið 2013. „Við misstum þrjá samstarfsfélaga hjá Landhelgisgæslunni úr krabbameini í fyrra þannig að við vorum í rauninni að heiðra minningu þeirra allra með þessu,“ segir Hreggviður.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira