Þriðjungi færri styðja Sjálfstæðisflokkinn í borginni Brjánn Jónasson skrifar 14. mars 2014 06:30
Sjálfstæðisflokkurinn myndi tapa tæpum þriðjungi þess stuðnings sem hann naut í borgarstjórnarkosningunum árið 2010 yrði kosið nú, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var síðastliðinn miðvikudag, fengi Sjálfstæðisflokkurinn 23,1 prósent atkvæða og fjóra borgarfulltrúa. Í kosningunum 2010 fékk flokkurinn 33,6 prósenta fylgi og fimm borgarfulltrúa. Björt framtíð nær samkvæmt könnuninni ekki að halda því mikla fylgi sem Besti flokkurinn undir forystu Jóns Gnarr sópaði að sér í síðustu kosningum. Björt framtíð, arftaki Besta flokksins, fengi 28,3 prósenta fylgi og fimm borgarfulltrúa samkvæmt könnuninni. Besti flokkurinn fékk 34,7 prósent og sex fulltrúa í síðustu kosningum. Samfylkingin vinnur á frá kosningunum og fengi 23 prósent atkvæða og fjóra borgarfulltrúa yrði gengið til kosninga nú, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Flokkurinn fékk 19,1 prósent atkvæða í síðustu kosningum og þrjá borgarfulltrúa. Ljóst er að ekki verður myndaður meirihluti nema með samstarfi tveggja af þessum þremur flokkum, sem samanlagt fengju þrettán borgarfulltrúa af fimmtán, samkvæmt könnuninni.Meirihluti Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar gæti samkvæmt þessu starfað áfram með sama meirihluta, níu borgarfulltrúa af fimmtán. Einn borgarfulltrúi myndi þó færast frá Bjartri framtíð til Samfylkingarinnar. Einnig er mögulegt að annar hvort flokkanna myndi nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokki eftir kosningarnar. Píratar bjóða nú fram til borgarstjórnar í fyrsta skipti. Flokkurinn fengi 9,6 prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú, sem myndi skila þeim einum manni í borgarstjórn. Vinstri græn mælast með svo til sama fylgi og Píratar, 9,5 prósent, og fengju eins og Píratar einn mann í borgarstjórn. Stuðningur við Vinstri græna hefur aukist frá kosningunum árið 2010, þegar þeir fengu 7,2 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. Aðrir flokkar ná ekki fimm prósenta lágmarkinu til að ná mönnum í borgarstjórn. Um 3,7 prósent ætla samkvæmt könnuninni að kjósa Framsóknarflokkinn, sem fékk 2,7 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Þá ætla 1,1 prósent að kjósa Dögun, sem ekki bauð fram síðast. Um 1,7 prósent segjast ætla að kjósa einhvern annan flokk.Aðferðafræðin Hringt var í 1.241 manns þar til náðist í 805 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 12. mars. Svarhlutfallið var 65 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var á Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 60 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira