Njóttu tilverunnar Í boði náttúrunnar á netinu Ritstjórn Lífsins skrifar 7. mars 2014 15:00 Dagný Gísladóttir og Guðbjörg Gissurardóttir „
Draumurinn var alltaf að gera vefsíðuna virkari en ég ákvað að það væri ekki raunhæfur möguleiki í upphafi þegar maður er að komast af stað í tímaritaútgáfu. Síðan þá hefur Dagný Gísladóttir komið til liðs við okkur en hún byrjaði í starfsnámi hjá mér í fyrra. Lokaverkefni hennar í Háskóla Íslands snerist um vefmiðil svo að við fengum tækifæri til að gera síðuna virka og nutum báðar góðs af því,“ segir Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri Í boði náttúrunnar, þegar talið berst að nýja vefmiðlinum. Tímaritið Í boði náttúrunnar kemur út þrisvar á ári og telur Guðbjörg netmiðilinn vera frábæra leið til að brúa bilið á milli blaðanna. Þannig geta þær verið virkar á hverjum degi í að koma góðum boðskap áleiðis. En hvað varð til þess að hún fór út í blaðaútgáfu? „Ég hafði að sjálfsögðu ekki hugmynd um hve mikil vinna þetta var en mér fannst þetta svo rosalega spennandi. Í þetta blað náði ég að setja öll áhugamálin mín á einn stað svo að það hefur verið drifkrafturinn frá upphafi. Það er ekki sjálfgefið að finna sér þannig vinnuvettvang,“ útskýrir Guðbjörg. Hún hefur gott auga fyrir grafík og ljósmyndum sem skín í gegn á vefsíðunni. Hún er menntuð sem grafískur hönnuður og segist hafa nýtt sér það í öllu ferlinu. Myndirnar eru fallegar og vefurinn aðgengilegur með efni sem tengist íslenskri náttúru, heilsu og hug og fleiru. „Það er svo mikið sjónrænt áreiti á okkur og því finnst mér svo mikilvægt að fólk geti notið síðunnar og það er nánast sem augað hvílist í leiðinni.“
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira