Verðum að skoða veru okkar innan Kennarasambandsins Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 21. febrúar 2014 07:00 Framhaldsskólakennara skoða þessa dagana innan hvaða heildarsamtaka þeim sé best borgið. Fréttablaðið/Getty „
Við þurfum að skoða vandlega veru okkar innan Kennarasambandsins,“ segir Guðríður Arnardóttir nýkjörinn formaður Félags framhaldsskólakennara. Hún segist ekki hafa lúrt á þeirri skoðun sinni að framhaldsskólakennarar eigi helst samleið með félögum sínum í Bandalagi háskólamanna. „Framhaldsskólakennarar eru sérfræðingar sem miðla þekkingu sinni áfram,“ segir Guðríður. Nýlega fór fram viðhorfskönnun meðal Framhaldsskólakennara en ekki er búið að birta niðurstöður hennar opinberlega. Guðríður segir að það sem hafi komið henni mest á óvart þegar hún skoðaði niðurstöður könnunarinnar var hversu lítil þekking er á starfsemi Kennarasambandsins. Þá komi fram í könnuninni að þeir sem svara séu ekki ánægðir með þjónustu Kennarasambandsins. Guðríður segir að það verði að fara vel yfir þessar niðurstöður og taka mið af þeim. Annað sem kom fram í könnuninni var að hluti framhaldsskólakennara vill ganga í BHM. Aðrir vildu ekki segja skilið við Kennarasambandið heldur lýstu þeirri skoðun sinni að sambandið ætti að hætta að starfa sem stéttarfélag en verða þess í stað regnhlífasamtök fyrir öll stéttarfélög kennara. Ekki var mikil þátttaka í viðhorfskönnuninni eða innan við 50 prósent. Guðríður segir að það breyti því ekki að það verði að taka mið af könnuninni. „Þeir taka þátt sem láta sig málið varða,“ segir hún. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir formaður stöðunefndar Félags framhaldsskólakennara segir að það sé margar skoðanir í gangi. „Eftir 14 ára veru í Kennarasambandinu er ekkert óeðlilegt við að menn líti um öxl og vegi og meti stöðu sína,“ segir Hanna Björg. Hún segist ætla að kynna niðurstöður könnunarinnar á aðalfundi Félags framahaldsskólakennara í mars.
Mest lesið Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Innlent Fundu spjótsodda alsetta gulli mörghundruð árum eldri en talið var mögulegt Erlent Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Innlent Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi Erlent Herflugvél snúið við í neyð Innlent Á fjórða hundrað gripa orðið fyrir vatnstjóni á Louvre Erlent Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi Erlent Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða Innlent Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Innlent Metþátttaka í golfsýningu Innlent Fleiri fréttir Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Áföllin hafi mótað sig Gramir að næstu göng á lista séu ekki á Austurlandi Herflugvél snúið við í neyð Mikið áhyggjuefni ef læknar komast ekki erlendis í sérnám Talsverður fjöldi uppfylli ekki lágmarkskröfur um netöryggi Ákvörðunin hafi einnig verið erfið fyrir stjórnarliðana Skortur á sérnámslæknum og ósáttir Austfirðingar Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Katrín gerir upp áföllin og tekist á um samgönguáætlun Réðst á starfsmenn lögreglu Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Þrír handteknir fyrir hótanir og vopnalagabrot Hrossahjörð á brokki fram Álftanesveg Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Gefa út litlausa viðvörun Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Vonast til að opna nýtt Konukot sem fyrst Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Óvænt breyting hækkaði lyfin um tugi þúsunda „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Reiknað með fjölmenni á jólamarkaði á Flúðum í dag Þórunn biðst afsökunar: „Bara mannleg eins og annað fólk“ Sjá meira