Tilkynnti Pharrell Williams að hún væri stór dós Marín Manda skrifar 21. febrúar 2014 18:00 Kamilla Ingibergsdóttir
Nafn? Kamilla IngibergsdóttirAldur? 34 áraStarf? Kynningarstjóri Iceland AirwavesHvern faðmaðir þú síðast? Hana Evu Einarsdóttur, vinkonu mína og borgarfulltrúa, en ég var ekki búin að hitta hana allt of lengi. En kysstir? Eva fékk líka koss. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Agus Makkie, indónesískur blaðamaður, sem hefur komið á Iceland Airwaves síðustu árin og færir mér alltaf gjöf. Á síðustu hátíð gaf hann mér kaffi frá Jövu og hálsklút. Hann er topp næs gaur. Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Ég held að partur af því að eldast og þroskast sé að taka sjálfan sig í sátt og allt sem manni fylgir, bæði galla og kosti. Ertu hörundsár? Já, pínu. Dansarðu þegar enginn sér til? Já, ég hugsa að ég dansi meira þegar enginn sér til en þegar einhver sér til. Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Það sem stendur upp úr er þegar ég hitti Pharrell Williams á SXSW í Texas í fyrra og varð svo „starstruck“ að ég sagði „I'm a huge can“ þegar ég ætlaði að segjast vera „huge fan“. Ég fer ennþá að hlæja við tilhugsunina um að hafa sagst vera risastór dós við Pharrell Williams. Hringirðu stundum í vælubílinn? Ég tárast yfir óþarfa mörgu en ég held að það sé algjör óþarfi að hringja á vælubílinn yfir því. Tekurðu strætó? Ég tók mikið strætó áður fyrr en á í dag bíl og er líka heppin að búa nálægt vinnu og miðbænum. Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég nota samfélagsmiðla mikið í mínu starfi og fel þess vegna óhóflega Facebook-notkun á bak við það. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Bara þegar ég hitti Pharrell Williams. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Ég elska ís og hef alltaf pláss fyrir hann. En ég held reyndar að allir vinir mínir viti það. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla alla vega ekki að ákveða að gera ekki eitthvað og fara síðan á bömmer ef ég geri það.
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira