Lítill munur á skólum á Íslandi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 19. febrúar 2014 10:00 Samkvæmt könnuninni er hér lítil fylgni á milli þjóðfélagsstöðu nemenda og frammistöðu þeirra í stærðfræði, lestri og náttúrufræði. Fréttablaðið /Vilhelm „
Ísland og Finnland hafa algera sérstöðu þegar kemur að jöfnuði í skólakerfinu,“ segir Óskar Níelsson, sérfræðingur hjá Námsmatsstofnun. Hann segir að þetta sé eitt af því sem komi mjög skýrt fram í PISA-könnuninni sem birt var í desember. „Það eru nánast engin tengsl á milli læsis og þjóðfélagsstöðu nemenda,“ segir hann.Í PISA-könnuninni kemur meðal annars fram að hér á landi ríkir mikill jöfnuður í tækifærum grunnskólanemenda til menntunar nánast óháð þjóðfélagsstöðu foreldra. Þegar litið er á allt landið skýrir þjóðfélagsstaða heimilis 7,7 prósent af breytileika í læsi nemenda á stærðfræði, 6,3 prósent af breytileika í lesskilningi og 7,5 prósent af breytileika í læsi á náttúrufræði. Tengsl milli þjóðfélagsstöðu og læsis sé helst að finna í skólum á höfuðborgarsvæðinu en þau tengsl séu mjög lítil í alþjóðlegu samhengi. Mæling OECD á þjóðfélagsstöðu samanstendur af þremur þáttum, virðingarstöðu starfs foreldra, menntunarstigi foreldra og efnahag þeirra. Í PISA-könnuninni voru nemendur spurðir um störf foreldra sinna og eðli starfanna og það skoðað í tengslum við frammistöðu þeirra á prófinu. Í Hollandi, Ungverjalandi, Belgíu og Tyrklandi er mikill munur á skólum en lítill munur á getu nemenda innan skóla. „Frammistaða nemendanna í þessum löndum skýrist frekar af þjóðfélagsstöðu foreldranna en öðrum þáttum,“ segir Óskar og bendir á að þessu sé þveröfugt farið í Finnlandi og á Íslandi. Þar sé lítill munur á milli skóla en mikill munur á getu nemenda innan hvers skóla. Þjóðfélagsstaða foreldranna í þessum löndum hafi lítið að segja um frammistöðu nemendanna í PISA-könnuninni. Fyrir OECD-ríkin í heild skýrir þjóðfélagsstaða foreldra 14,6 prósent af breytileika í læsi nemenda á stærðfræði og hvergi innan OECD er hlutfallið lægra en á Íslandi, eða 8,8 prósent. „Mitt persónulega mat er því að við séum að standa okkur einna best í heiminum hvað varðar jöfnuð til náms,“ segir Óskar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira