Lengingu varnargarðs við Markarfljót mótmælt Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. febrúar 2014 09:15 Íbúar austan Markarfljóts óttast að fyrirhuguð lenging varnargarðs vestan megin árinnar ógni byggð. Samráð við íbúa hafi skort. Landeyjahöfn er vestan Markarfljóts, til vinstri á myndinni. Fréttablaðið/Pjetur „
Með því að veita Markarfljóti með þessum hætti til austurs teljum við að verið sé að setja lönd og byggð í mikla hættu,“ segir í bréfi íbúa austan Markarfljóts sem mótmæla fyrirhugaðri lengingu varnargarðs vestan megin árinnar. Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur með fyrirvara samþykkt ósk Vegagerðarinnar um að leiðigarðurinn verði lengdur um 250 metra. Tilgangurinn er að beina sandburði úr Markarfljóti frá Landeyjahöfn.Sjá ekki rök fyrir gagnsemi Íbúarnir segjast ekki hafa séð afgerandi rök fyrir því að leiðigarðurinn geri nokkurt gagn varðandi Landeyjahöfn. „Síðustu mánuði hefur aðalfarvegur Markarfljóts sótt austur neðan brúar og lagst að Seljalandsgarðinum sem hefur látið á sjá,“ segja íbúarnir og útskýra að sandur sé farinn að fylla farveginn þannig að hluti fljótsins renni austur. Þekkt sé að klakastíflur myndist í Markarfljóti og það skapi hættu á að vatn leiti til austurs. „Teljum við nauðsyn að fá varnargarð austan megin við Markarfljót til varnar byggðinni,“ segja íbúarnir sem gagnrýna jafnframt að ekkert samráð hafi verið haft við landeigendur og íbúa á svæðinu um það að lenging varnargarðsins skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Mótmælunum fylgja 52 undirskriftir sem Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri segir ekki aðeins vera frá þeim bæjum sem eigi land að Markarfljóti.Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra.Fyrirvari um samþykki landeigenda „Að okkar mati er um ákveðinn misskilning að ræða sem ber að leiðrétta,“ segir í bréfi sem Ísólfur Gylfi sendir mótmælendunum fyrir sína hönd og skipulags- og byggingarfulltrúa sveitarfélagsins. Þar er undirstrikað að skipulagsnefnd og síðar sveitarstjórn setji þau skilyrði fyrir lengingu garðsins að framkvæmdin sé samþykkt af landeigendum og Fiskistofu. Þess utan sé ítrekuð sú skoðun að Markarfljót verði stokkað af með varnargörðum allt niður að ósi austan megin fljótsins. Þá er í bréfinu til íbúanna bent á umsögn Skipulagsstofnunar um málið. „Niðurstaða stofnunarinnar er sú að megináhrif af fyrirhuguðum framkvæmdum vegna færslu óss Markarfljóts til austurs, að hvorki sé líklegt að um verði að ræða neikvæð áhrif vegna landbrots upp með farvegi fljótsins eða að ósinn muni færast lengra í austur en ætlað er með tilkomu garðsins,“ segja sveitarstjórinn og byggingarfulltrúinn.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira