83% notenda ánægðir með heilsugæslu Freyr Bjarnason skrifar 14. febrúar 2014 07:00 83 prósent notenda eru mjög eða frekar ánægð með Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fréttablaðið/Stefán
Um 83 prósent notenda eru mjög eða frekar ánægð með þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og liðlega 75 prósent bera mikið eða frekar mikið traust til hennar. Þá telja tæplega 89 prósent að mjög eða frekar vel hafi verið leyst úr erindi þeirra þegar þau komu síðast á heilsugæslustöðina sína. Þetta er meðal þess sem fram kemur í þjónustukönnun sem rannsóknafyrirtækið Maskína gerði fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í lok síðasta árs. „Ég tel að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins geti unað nokkuð vel við þessar niðurstöður. Þær sýna að þrátt fyrir erfitt árferði og mikið aðhald í rekstri hefur okkur tekist að halda uppi þjónustu sem notendur eru almennt sáttir við,“ segir Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Þetta má meðal annars þakka frábæru starfsfólki sem hefur lagt mikið á sig og verið tilbúið að laga sig að breyttum aðstæðum til að halda uppi sem bestri þjónustu.“ Hún bendir á að framlög til Heilsugæslunnar voru lækkuð um tæpar 400 milljónir króna á árunum 2009 til 2012, og lækka að auki um 100 milljónir króna í ár. Ekki síst í ljósi þessa sé niðurstaða könnunarinnar ánægjuleg og viðurkenning á því góða starfi sem fer fram innan Heilsugæslunnar.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira