Keppst um útskriftarverkefni Ugla Egilsdóttir skrifar 26. febrúar 2014 13:30 Hrefna Bragadóttir frétti af náminu í barnabókamyndskreytingu í gegnum Birgittu Sif "Hún er að gera góða hluti líka í barnabókamyndskreytingu,“ segir Hrefna.
Fjögur bresk bókaforlög hafa falast eftir því að fá að gefa út útskriftarverkefni Hrefnu Bragadóttur úr námi hennar í barnabókamyndskreytingu frá Cambridge School of Arts. „Það er mikla vinnu að fá í augnablikinu,“ segir Hrefna. Bæjarblaðið í Cambridge, Cambridge News, fjallaði um áhuga útgefenda á verkefni Hrefnu í gær. „Þau hringdu í mig og báðu um teikningu eftir mig til að birta með fréttinni. Núna er ég bara að vinna úr tilboðunum og reyna að taka rétta ákvörðun. Svo fékk ég tvö atvinnutilboð í teiknimyndagerð bara í síðustu vikuna, og fæ svo símtal frá Fréttablaðinu í dag! Hvað er í gangi?“TEIKNARI Hrefna hefur búið í Bretlandi frá sautján ára aldri.Hrefna útskrifaðist árið 2004 með BA í teiknimyndagerð fyrir sjónvarp. „Síðan vann ég í átta ár við að gera teiknimyndir, meðal annars fyrir BBC. Svo langaði mig að breyta til vegna þess að ég saknaði þess að teikna meira, en í teiknimyndabransanum er allt gert í tölvu. Þess vegna fór ég í meistaranám í Cambridge School of Arts þaðan sem ég útskrifaðist núna í febrúar. Við útskriftarnemendurnir héldum útskriftarsýningu í London í síðustu viku. Eftir það hafa fjórir útgefendur haft samband við mig. Tveir eru búnir að gera mér tilboð og ég hitti hina tvo á miðvikudaginn.“ Sagan sem Hrefna skrifaði og myndskreytti fjallar um persónu sem heitir Nelson. „Hann dreymir um að vera aðalpersóna í barnabók. Fyrst heldur hann að það sé voðalega auðvelt og fer í áheyrnarprufu með alls konar björnum og úlfum og músum, svona dýrum sem eru dæmigerðar persónur í barnabókum. Nelson fer á svið og sýnir kúnstir sínar. Honum er hafnað af því að öllum finnst hann vera of skrítinn. Þá fer hann að reyna að vera eins og hinir. Hann reynir að vera eins og björninn, reynir að vera eins og úlfurinn, en að lokum fattar hann að hann getur ekki þóst vera neinn annar. Hann fattar á endanum að hann er í bók, og hann er búinn að vera sögupersóna allan tímann,“ segir Hrefna.
Mest lesið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Sjá meira