Tæpur þriðjungur fer aftur heim til ofbeldismannsins Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 26. febrúar 2014 07:00 Sigþrúður Guðmundsdóttir segir að konur eigi erfitt með að hefja nýtt líf eftir dvöl í Kvennaathvarfinu vegna húsnæðisskorts og bágrar fjárhagsstöðu. Vísir/Valgarður
Eftir dvöl í Kvennaathvarfinu fóru 27 prósent kvennanna aftur heim í óbreyttar aðstæður, samkvæmt nýrri skýrslu frá Kvennaathvarfinu fyrir árið 2013. „Það vantar brú fyrir þessar konur, eitthvað sem styður þær á þessu erfiða tímabili,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. „Þær sækja um skilnað en mennirnir geta dregið það ferli á langinn. Á meðan fá þær ekki engan stuðning í kerfinu og eru í miklu óvissuástandi. Þá gefast þær oft upp og fara aftur heim.“ Fleiri fóru þó heim í óbreytt ástand árið 2012, eða 34 prósent. „Það kemur mér ánægjulega á óvart að konum fer fækkandi sem fara aftur heim til ofbeldismannsins. Það eru góðu fréttirnar við þessa skýrslu,“ segir Sigþrúður. Það vekur athygli að 51 prósent kvennanna nefna líkamlegt ofbeldi sem ástæðu komunnar í Kvennaathvarfið en hærra hlutfall, eða 64 prósent kvennanna, segjast hafa hlotið líkamlega áverka í sambandinu. „Konurnar búa og eiga í nánum samskiptum við ofeldismanninn sem veldur því að hann yfirtekur skilgreiningarnar í sambandinu. Hann kannski hrindir konunni og hún fær mar, en hann skilgreinir fyrir þau að þetta hafi ekki verið ofbeldi og hans skýringar gilda.“ Sigþrúður segir þó opnari umræðu um ofbeldi, og þá sérstaklega kynferðislegt ofbeldi, hjálpi konunum að skilgreina og segja frá ofbeldinu. Hún segir til dæmis fleiri konur nefna kynferðislegt ofbeldi sem ástæðu komunnar í athvarfið en áður. „En það þýðir ekki endilega að fleiri verði fyrir kynferðislegu ofbeldi, þær segja bara frekar frá því sem er gott.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira