Eimskip sendi lækni á Herjólfsmenn sem tilkynntu veikindi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 2. apríl 2014 15:19 "Trúnaðarlæknir hafði samband við heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og í samvinnu við hana forvitnaðist hann um heilsu áhafnarmeðlima,“ segir Ólafur William Hand , markaðs- og upplýsingafulltrúi Eimskipafélagsins. VÍSIR/GVA
Eimskipafélag Íslands hafði samband við trúnaðarlækni félagsins til að kanna með heilsu þeirra starfsmanna Herjólfs sem tilkynntu veikindi í morgun. Frumvarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra um að fresta verkfallsaðgerðum undirmanna á Herjólfi til 15. september var samþykkt á Alþingi í gær. „Trúnaðarlæknir hafði samband við heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og í samvinnu við hana forvitnaðist hann um heilsu áhafnarmeðlima,“ segir Ólafur William Hand, markaðs- og upplýsingafulltrúi Eimskipafélagsins. Í einhverjum tilfellum hafi áhafnarmeðlimir annað hvort verið boðaðir á heilsugæsluna eða læknir fór heim til þeirra. „Ég veit ekki nákvæmlega hvernig því var háttað,“ segir Ólafur. Hann segir fulla ástæðu til þess að athuga með heilsu áhafnarmeðlima þegar svona margir sem starfi um borð í einu skipi tilkynni veikindi. Aðrir áhafnameðlimir og farþegar skipsins þurfi að vita hvað það er sem veldur svona skyndilegum veikindum hjá jafn mörgum. „Okkur er annt um heilsufar áhafnarmeðlima og við viljum gera það sem við getrum til að þeir nái heilsu og komast að því hvað það er sem hrjáir þá,“ segir Ólafur.Þið eruð ekki að kalla til læknis vegna gruns um að áhöfnin hafi gert sér upp veikindi? „Við viljum ekki gera mönnum það upp að þeir séu að gera sér upp veikindi og við tökum því mjög alvarlega að áhöfnin veikist.“ Í litlu samfélagi eins og um borð í skipi verði að komast að því ef um sé að ræða matareitrun eða pestir. Hvað ætlið þið að gera ef í ljós kemur að starfsmenn voru ekki raunverulega veikir? „Við erum ekki farin að hugsa svo langt,“ segir Ólafur. „Ég neita að trúa því að menn séu að gera sér upp veikindi.“
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira