Fjöldaveikindum tekið af fullri alvöru Heimir Már Pétursson skrifar 2. apríl 2014 20:15
Allir undirmenn á Herjólfi sem Alþingi frestaði verkfallsaðgerðum hjá í nótt, tilkynntu sig veika í morgun. Rekstrarstjóri skipsins segir alvarlegt þegar helmingur áhafnar veikist og voru starfsmennirnir allir kallaðir í skoðun hjá trúnaðarlækni fyrirtækisins. Sex undirmenn á Herjólfi höfðu verðið verkfallsaðgerðum frá 5. mars, sem fólst í að ekki var unnin yfirvinna og ekki á föstudögum og um helgar, þegar innanríkisráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi seinnipartinn í gær sem frestaði aðgerðunum til 15. september. Áður en Herjólfur lét úr höfn í morgun tilkynntu undirmenn sig alla veika og voru landmenn Eimskipa í Eyjum látnir sigla í þeirra stað. Fyrirtækið lét síðan trúnaðarlækni sinn kanna heilsufar skipverjanna sem tilkynntu veikindin. „Eins og eðlilegt er þegar svona gerist. Því að staðan er auðvitað alvarleg ef upp koma svona fjöldaveikindi á svona litlum vinnustað. Þá er það eitthvað sem menn hljóta að skoða og taka af fullri alvöru,“ segir Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri Herjólfs. Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Íslands sagði á Vísi í dag að gott væri til þess að vita að Eimskip að hægt sé að ganga að læknum Eimskipafélagsins. Ekki liggur ljóst fyrir hvort starfsmennirnir mæti til vinnu á morgun en ferðir skipsins voru með eðlilegum hætti í dag. „Við mönnuðum skipið eins og mönnunarreglur gera ráð fyrir. Að sjálfsögðu var það allt gert eins og lög kveða á um. Maður veit svo sem ekki hvað nýr dagur á morgun ber í skauti sér en auðvitað erum við að hugsa um það ef veikindin verða áfram á morgun, þá þurfum við að bregðast við því líka ja,“ segir Gunnlaugur. Ef undirmenn mæti ekki verði skipið mannað öðrum starfsmönnum eins og í dag.Eruð þið að íhuga einhver önnur viðbrögð? „Ekkert á þessu stigi. Við svosem gefum okkur ekki annað en þetta séu eðlileg forföll og þangað til annað kemur í ljós getum við ekki sagt annað en við reynum að vinna vinnuna okkar og halda áætlun,“ segir Gunnlaugur Grettisson.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira