Partý framhaldsskólanema í Turninum blásið af Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. mars 2014 11:05 Turninn nítjánda er veitingastaður á 19. hæð turnsins. vísir/stefán
Partýi framhaldsskólanema sem halda átti í Turninum nítjándu í Kópavogi á morgun hefur verið aflýst. Það er ákvörðun eiganda Salarins eftir fund með lögregluyfirvöldum. „Lögregluyfirvöld settu sig í samband við mig af fyrra bragði,“ segir Eggert Gíslason, einn af eigendum staðarins, en hann hafði ekki heyrt af partýinu fyrr en hann las um það á Vísi. „Ætli þetta hafi ekki verið einhver misskilningur. En skipuleggjendurnir höfðu fullan skilning á þessu. Þetta er ábyrgð sem ég get ekki tekið gagnvart húseigendum og einnig varðandi aldurstakmörk. Þetta eru krakkar í menntaskóla.“ Að sögn Eggerts hefur Turninn nítjánda leyfi fyrir 400 manns en yfir 3.000 höfðu fengið boð í partýið á viðburðasíðu á Facebook. Þar af höfðu yfir 500 staðfest komu sína og tæplega 400 sagst mögulega ætla að mæta. „Þetta hefði orðið eitt kaos. Þetta er skrifstofuhúsnæði sem er opið fram eftir kvöldi,“ segir Eggert og vonast hann til að sem flestir fái fregnir af því að ekki verði af partýinu.Hilmar Jökull Stefánsson, einn af skipuleggjendum partýsins, segir í samtali við Vísi að hann harmi ákvörðun turnsins en sýni henni fullan skilning. „Við munum að öllum líkindum reyna að halda einhvern annan viðburð á næstunni í staðinn fyrir þennan,“ segir Hilmar.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira