Vilja tugþúsunda leiðréttingu Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 9. apríl 2014 09:00 Nemendur við Háskóla Íslands hafa miklar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli háskólakennara. Fréttablaðið/Valli
Ein aðalkrafa Félags háskólakennara er að sama stigakerfi starfsmanna gefi sömu laun, óháð starfsheiti. Krafan er að öllum akademískum starfsmönnum verði varpað inn í sömu launatöflu. Þá er þess krafist að laun annarra starfsmanna verði færð til samræmis við breytingar sem verða á launum akademískra starfsmanna. Þetta þýðir á mannamáli að krafa háskólakennara og akademískra starfsmanna snýst um að laun þeirra hækki um 10 til 14 prósent. Sem dæmi má taka að lektor sem hefur unnið sér inn 400 stig vegna rannsókna og greinaskrifa er með 455 þúsund krónur á mánuði. Prófessor sem er með sama stigafjölda er með 523 þúsund á mánuði. Háskólakennarar telja að laun þessara tveggja manna eigi að vera þau sömu. Félag háskólakennara telur að þeir hafi dregist aftur úr prófessorum í launum á undanförnum misserum. Laun háskólakennara og prófessora ákvarðast að hluta til af því hversu margar rannsóknir þeir gera og hversu margar greinar þeir fá birtar í viðurkenndum vísindaritum. Þetta er reiknað til stiga samkvæmt ákveðnum reglum og hækkar laun þeirra. Í kröfugerð háskólakennara kemur fram að prófessorar, sem eru í sér stéttarfélagi, og aðrir akademískir starfsmenn háskólanna gangast undir sama hæfnismat við ráðningu í störf og árangur þeirra í starfi er mældur með sama hætti. Að sama stigakerfi gefi sömu laun óháð starfsheitum telja háskólakennarar leiðréttingu á launum. En auk þess krefjast háskólakennarar sömu hækkana og Bandalag háskólamanna. Félag háskólakennara hefur boðað tímabundið verkfall frá 25. apríl til 10. maí að báðum dögum meðtöldum. Þetta er á prófatíma háskólans. Fari háskólakennarar í verkfall lamast starfsemi skólans algjörlega. Þó að prófessorar og stundakennarar leggi ekki niður vinnu þá geta þeir ekki lagt próf fyrir nemendur sína. Jörundur Guðmundsson, formaður Félags háskólakennara, segir að það megi ekki halda próf nema undir stjórn kennslusviðs og prófstjóra og þetta fólk sé í Félagi háskólakennara. „Við stöndum fastir á því að það verði ekki haldin nein próf. Það þarf að auglýsa prófafyrirkomulag í upphafi misseris. Það er ekki hægt að breyta því allt í einu núna,“ segir Jörundur. Haldnir hafa verið nokkrir árangurslausir sáttafundir í deilunni og í dag er nýr sáttfundur boðaður.
Mest lesið „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Fleiri fréttir Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Sjá meira