Formaður foreldrafélags Austurbæjarskóla: Foreldrar heyrðu af árás á nemanda í fjölmiðlum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. apríl 2014 10:22 "Gæslan virðist því vera í góðu lagi, það er ekki málið, þetta gerðist bara svo snögglega,“ segir Hildur. VÍSIR/EINAR
Árásin á sjö ára dreng í Austurbæjarskóla átti sér stað í fyrstu frímínútum á mánudagsmorgun. Það var foreldri annars barns sem réðst á drenginn. Þetta kom fram á aðalfundi foreldrafélags skólans í gærkvöldi að sögn Hildar Sveinsdóttur, formanns félagsins. „Þessi kona átti erindi í skólann, hún er ekki utanaðkomandi,“ segir Hildur. Málsatvik voru þau að því er fram kom í Fréttablaðinu í morgun að fullorðin kona skallaði sjö ára dreng þar sem hann var við leik á lóð skólans. Foreldrar annarra barna við skólann voru ekki látnir vita af því sem gerðist á mánudaginn og heyrðu flestir af málinu í fjölmiðlum. Skólastjórinn sendi svo tölvupóst í gærkvöldi, daginn eftir árásina. Þar gerði hann grein fyrir því hvað gerst hafði og sagði málið hafa verið kært til lögreglu og tilkynnt barnaverndaryfirvöldum. „Margir foreldrar eru ósáttir við að hafa ekki verið látnir vita og fengið tækifæri til þess að ræða við börnin sín um málið,“ segir Hildur. „Nokkur börn urðu vitni að árásinni.“ Starfsmaður skólans sá konuna ræða við drenginn og var á leið til þess að kanna hvaða erindi hún ætti við hann þegar konan réðst skyndilega á drenginn. „Gæslan virðist því vera í góðu lagi, það er ekki málið, þetta gerðist bara svo snögglega,“ segir Hildur.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira