Skora á heilbrigðisráðherra að stofna embætti umboðsmanns sjúklinga Stefán Árni Pálsson skrifar 9. apríl 2014 16:13 Kristján Þór Júlíusson og Ellen Calmon, formaður ÖBÍ.
Geðhjálp, SÍBS og ÖBÍ skora á heilbrigðisráðherra að stofna embætti Umboðsmanns sjúklinga en í dag fóru Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS og Ellen Calmon, formaður ÖBÍ á fund Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra. Þar kynntu þau brýna þörf fyrir stofnun embættis Umboðsmanns sjúklinga til að mæta þörf almennings fyrir upplýsingamiðlun. Vöktu þau athygli á að almenningur standi oft ráðþrota gagnvart flóknum úrræðum kerfisins. Aðgangur að upplýsingum, ráðgjöf og stuðningi til að fylgja erindum sínum eftir sé erfiður. Flókið geti verið fyrir sjúklinga, fatlaða, aðra notendur heilbrigðiskerfisins og aðstandendur þeirra að greina hvaða stofnun veiti viðkomandi þjónustu. Margvíslegt óhagræði geti skapast innan opinberu stofnanna sem hafi í för með sér hættu á að úrlausn sambærilegra erinda séu leyst með ólíkum hætti í sitthvorri stofnuninni. Til að leysa úr þessum vanda leggja hagsmunasamtökin til að stofnað verði embætti umboðsmanns sjúklinga, sem hefur það hlutverk: • Að veita almenningi upplýsingar og ráðgjöf um ólík úrræði innan heilbrigðis- og tryggingakerfisins. • Að taka við ábendingum almennings um þjónustu heilbrigðis- og tryggingakerfisins og koma umkvörtunum eða kærumálum í viðeigandi farveg. • Að krefja stofnanir hins opinbera um svör eða gögn með tilteknum fresti, líkt og Umboðsmaður Alþingis getur gert í dag. • Að veita ráðgefandi álit í málsmeðferð stofnana ásamt því að koma á framfæri við stofnanirnar tillögum að vinnureglum til að tryggja samhæfð viðbrögð, draga úr óvissu og spara tíma. • Að hafa frumkvæði að því að semja umsagnir um þingmál og stuðla að samvinnu aðila í því skyni að koma á umbótum fyrir sjúklinga ásamt því að rækta tengsl við sambærileg embætti erlendis.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira