"Þetta má ekki verða enn ein skýrslan" Birta Björnsdóttir skrifar 17. mars 2014 20:00
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa frá 2010 unnið að stefnumótun um meðal annars gæði skólastarfs í alþjóðlegum samanburði auk aukinnar samvinnu skólastiga, allt frá leikskóla að háskóla. Samtökin gerðu grein fyrir starfi sínu og helstu niðurstöðum á þessu sviði í Austurbæjarskóla í dag. Þar kom meðal annars fram að hluta af þeim 400 milljónum sem samtökunum var veitt til verksins fór í framkvæmd á greiningum á stöðu mála, og þar kom ýmislegt áhugavert fram. Meðal annars staðreyndir um brotthvarf nemenda úr framhaldsskólum. Samkvæmt niðurstöðum hagrænnar greiningar kostar brotthvarf nemenda úr framhaldsskólum samfélagið um 52 milljarða ár hvert, þar af 32 milljónir á höfðuðborgarsvæiðinu. „Það er augljóst að þetta eru slíkir fjármunir að við þurfum að bregðast við. Við erum að bjóða upp í samstarf, þessi sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, við ríkisvaldið, um sjö ára aðgerðaráætlun sem miði að þvi að minnka brotthvarfið um helming með því að tengja betur saman gunnskólana og framhaldsskólana, því ræturnar liggja í grunnskólunum,“ segir Skúli Helgason, verkefnastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í menntamálum. Þessi tenging milli gunn- og framhaldsskóla gæti meðal annars verið fólgin í því að færa forræði framhaldsskólanna yfir á hendur sveitarfélaga í stað ríkis. Með því sé meðal annars hægt að auka skilvirkni skólastarfs og gera þjónustu við nemendur markvissari. „Að skólastarfið okkar alls staðar miði að því að vinna með það sem krakkarnir eru góðir í og vinna með styrkleika þeirra. Frekar en að vera að vera sífellt að reyna að koma sömu þekkingarkílóunum inn hjá hverjum einasta nemanda,“ segir Skúli. Hann segir mikilvægt að vinnan verði nýtt til góðra verka. „Þetta má ekki verða enn ein skýrslan, það er gríðarlega mikið í húfi, ekki bara framtíð barnanna okkar heldur einnig samfélagsins alls,“ segir Skúli.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Sjá meira