Ný íþróttamiðstöð hjá GKG Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 24. mars 2014 07:00 Núverandi golskáli var söluskáli á Selfossi og keyptur af GKG vorið 1990. Vísir/GVA
Formaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, Guðmundur Oddsson, skrifaði í gær undir viljayfirlýsingu um byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar GKG ásamt bæjarstjórunum Ármanni Kr. Ólafssyni og Gunnari Einarssyni. GKG er 20 ára á þessu ári. Í klúbbnum eru nú tvö þúsund félagar, 338 af þeim eru börn og unglingar undir 15 ára aldri. Að auki eru 67 einstaklingar 16 til 18 ára og um 470 krakkar fara í gegnum golfleikjanámskeið GKG. Það eru því tæplega 900 börn og unglingar sem nýta sér þjónustu GKG á hverju ári. Þess má geta í því samhengi, að stærsti klúbbur Danmerkur er með 180 börn og unglinga skráða sem meðlimi. Klúbburinn segir aðstöðuna ekki hafa fylgt auknum fjölda iðkenda en núverandi golskáli var söluskáli á Selfossi og keyptur af GKG vorið 1990. Undanfarin ár hefur því verið unnið að þarfagreiningu á klúbbhúsi fyrir GKG. Í ljósi þess að barna- unglinga og afreksstarf félagsins er með þeim hætti sem er, þarf að taka mið af því við byggingu nýs klúbbhúss. Það var því niðurstaðan að sameina innanhússæfingastöðu við félagsaðstöðuna og byggja Íþróttamiðstöð í stað hefðbundins klúbbhúss. Búið er að teikna drög að Íþróttamiðstöðinni og er það Helgi Már Halldórsson sem unnið hefur þá vinnu. Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar fór yfir hve mikilvæg starfsemi GKG væri fyrir samfélagið. Fyrir utan það forvarnagildi sem barna- og unglingastarfið væri, þá væri það líka mikilvægt að búa sem mestan fjölbareytilieika. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs bætti því við að golfið væri íþrótt sem hægt væri að stunda fram eftir aldri og um 200 eldri borgarar eru skráðir í GKG. Margir þeirra spila golf allan ársins hring og veitir golfið með þeim hætti þessum bæjarbúum glæsilega hreyfingu sem og félagslíf.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja Sjá meira