„Góðmennskan og samkenndin er alveg ótrúleg" Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. mars 2014 11:30 Á fimmtudaginn brotnaði brettið. Ekki hefur staðið á viðbrögðunum síðan þá. Vísir/aðsent „
Góðmennskan og samkenndin er alveg ótrúleg – alveg með ólíkindum,“ segir Berglind Þórðardóttir, móðir níu ára drengs sem lenti í slysi á fimmtudag. Drengurinn var á hjólabretti sínu í íbúðarhverfi í Hafnarfirði og lenti í lítillegum árekstri við bíl með þeim afleiðingum að brettið brotnaði. Kona sem ók bílnum brást illa við og húðskammaði son Berglindar áður en hún ók í burtu. Vitni voru að slysinu, sem hlúðu öll að syni Berglindar – og náðu því ekki númeri bílsins sem konan ók. Drengurinn slasaðist ekki. „Hann slasaðist ekki á líkama, en sálin var lemstruð. Hann var í áfalli eftir þetta. Sérstaklega líka vegna þess að konan skammaði hann rosalega,“ útskýrir Berglind. Berglind vakti athygli á málinu á Facebook um kvöldmatarleytið í gær. Viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Rúmlega átján hundruð manns hafa deilt færslu Berglindar og mikill fjöldi sett sig í samband við hana. „Tvær verslanir hafa boðist til að gefa syni mínum nýtt hjólabretti og mikill fjöldi brettastráka hefur boðist til að gefa honum brettaplötur sem þeir eiga aukalega, til þess að reyna að bæta honum þetta tjón,“ segir Berglind og lýsir yfir mikilli ánægju vegna viðbragða brettastrákanna: „Þeir sögðu eiginlega allir: „Við brettastrákarnir stöndum saman“. Þeir voru allir svo ánægðir að sonur minn hafði safnað sér fyrir brettinu sjálfur.“Konan ók í burtu Í Facebook-færslu Berglindar lýsir hún atvikum málsins og hvetur konuna sem sat við stýri bílsins til að gefa sig fram. Berglind var ósátt með viðbrögð konunnar:„Ef þú ert í kringum sextugt, grönn og með hvítgrátt stutt hár og ekur um á dökkbláum skutbíl eða smájeppa, og jóst þér yfir drenginn minn, þá eru þessi skilaboð til þín. Hefðir þú stungið af ef fóturinn á honum hefði lent undir bílnum?Málið var tilkynnt lögreglu svo þú getur hvort heldur sem er gefið þig fram við yfirvöld til að bæta drengnum brettið eða beint við okkur. Bretti er ekki bara bretti í augum 9 ára barns, heldur var það fjarlægur draumur, og því tók árið að safna þessum 17 þúsund krónum sem brettið kostaði.“ Sonur Berglindar var búinn að eiga hjólabrettið sem brotnaði í tæpar tvær vikur. Hann safnaði sér fyrir því sjálfur. „Hann er mikið fyrir bretti, honum finnst líka ótrúlega gaman á snjóbretti. Hann hefur erft bretti eftir aðra, er til dæmis á snjóbretti sem bróðir hans átti. Það er alltof stórt fyrir hann, en hann lætur sig hafa það,“ útskýrir Berglind og heldur áfram: „Hann ákvað að safna sér fyrir þessu bretti og keypti fyrir um tveimur vikum. Síðan þá hefur verið varla verið hægt að fara með það út, vegna þess að snjór er yfir öllu. Hann hefur verið á því inni í stofu síðan hann fékk það.“ Hér að neðan má sjá skrif Berglindar á Facebook.Hér er sonur Berglindar með brotna brettið.Drengurinn í áfalli Berglind segir það hafa verið ótrúlega erfitt að heyra í syni sínum eftir slysið. „Ég hef aldrei heyrt drenginn tala svona. Hann fékk bara taugaáfall. Hann náði ekki andanum. Hann hringdi í mig eftir að þetta gerðist og ég heyrði bara skjálftann og hræðsluna í rödd hans. Hann var fyrst og fremst ótrúlega hræddur.“ Berglind segir að syni hennar hafi sárnað viðbrögð konunnar sem jós yfir hann skömmunum. „Hann var niðurbrotinn eftir þetta allt saman. Hann gat ekki haldið á brettinu, eins og hann gerir á myndinni af honum, fyrr en tveimur dögum seinna,“ útskýrir hún.Keyrði of hratt Sonur Berglindar var staddur heima hjá vinkonu sinni og voru þau að leik í íbúðarhverfi. „Konan hefur verið að keyra alltof hratt. Það er enginn gangstétt sem skilur að lóðina og götuna. Hann rennur út á götuna með þessum afleiðingum,“ segir Berglind. Hún segir að hægt sé að uppfæra gamlan málshátt – sem ætti að fá fólk til þess að keyra hægar í íbúðarhverfum. „Áður fyrr var talað um að á eftir bolta kæmi barn. Núna má líka segja að á eftir bretti kemur barn. Ég held að við þurfum öll að taka okkur á og keyra hægar inn í íbúðarhverfum. Þetta hefði getað endað illa,“ segir Berglind.Hér er Berglind með syni sínum.Stórkostleg viðbrögð Berglind er ótrúlega ánægð með viðbrögðin við skrifum hennar á Facebook. „Ég setti færsluna inn um kvöldamatarleytið í gær og nú eru rúmlega 1800 manns búnir að deila henni. Mohawks og Brim hafa sett sig í samband við mig og boðið honum nýtt bretti. Mér þykir líka svo vænt um skilaboðin frá brettastrákum landsins. Það eru vel á annan tug sem hafa boðið honum að eiga hjólabrettaplötur sem þeir eiga aukalega,“ segir Berglind.Vill afsökunarbeiðni Berglind er viss um að konan sem ók bílnum sé góð kona. „Ég held að henni hafi einfaldlega verið brugðið. Ég trúi því að þetta sé góð kona, góð móðir og góð amma. Hún hefur bara verið í sjokki og þess vegna skammað drenginn minn svona.“ Hún vonast til þess að konan sjái nú að sér og biðjist afsökunar. „Þegar sonur minn var búinn að jafna sig á þessu áfalli, hafði hann orð á því að konan hafi ekki einu sinni beðist afsökunar. Við kennum börnunum okkar að biðjast afsökunar þegar þau gera mistök og ég vona að konan geri það líka,“ segir Berglind. Berglind er með einföld skilaboð til allra: „Nú er snjó farið að leysa. Þá er ótrúlega mikilvægt að vera vakandi í umferðinni og keyra hægar í íbúðarhverfum.“ Post by Berglind Þórðardóttir.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Fleiri fréttir Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Sjá meira