Stórskemmtilegt að kljást við Celtic Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. júní 2014 08:00 KR-ingar eru ánægðir með að hafa fengið Celtic. Fréttablaðið/Daníel
Dregið var í fyrstu umferðir forkeppni Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar UEFA í gær og voru fjögur íslensk lið í pottinum. Þrjú þeirra fara til Bretlandseyja en Íslandsmeistarar KR drógust gegn stórliði Celtic í Meistaradeild Evrópu. Hólmbert Aron Friðjónsson, fyrrverandi leikmaður Fram, er á mála hjá Celtic. Þrjú lið taka þátt í Evrópudeild UEFA. Bikarmeistarar Fram mæta Nomme Kalju frá Eistlandi, Stjarnan leikur gegn Bangor City frá Wales og FH gegn Glenavon frá Norður-Írlandi. Öll þrjú íslensku liðin komu á undan upp úr hattinum og leika heimaleiki sína þann 3. júlí. Í fyrra komust FH-ingar áfram úr annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu og tryggðu sér þar með minnst fjóra leiki til viðbótar og talsverðar tekjur fyrir félagið. Til að leika þann leik eftir þurfa KR-ingar að slá skoska stórveldið úr leik. „Veikasti andstæðingurinn sem við gátum fengið var líklega Ventspils frá Lettlandi en það er auðvitað stórskemmtilegt að fá að kljást við Celtic,“ sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, við Fréttablaðið. „Ég var því heilt yfir sáttur.“ KR hafði frumkvæði að því að skipta á heimaleikjum og fer því fyrri viðureignin fram hér á landi um miðjan næsta mánuð. Kristinn segir ljóst að hann muni fara fram á KR-velli. „Við munum ekki gefa það eftir, sama hvað. Það er betra í alla staði að spila á okkar heimavelli.“ Kristinn segir að í gær voru þreifingar um sjónvarpsrétt nýhafnar en hann segir ljóst að af öllum liðum sem KR gat fengið mun Celtic skila Vesturbæingum mestum tekjum. „En það er ekkert komið á hreint í þeim efnum – menn eru rétt byrjaðir að klóra sér í skallanum yfir því,“ sagði Kristinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Fleiri fréttir Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals „Vil sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á“ Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Davíð Smári hóf sína eigin bikarvörn á sigri Upplifunar- og gæðastjórinn segir mikilvægt að rýna í xF Sérfræðingarnir svara: Spenntastir fyrir nýju Skagamönnunum og strákunum fyrir norðan Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Sjá meira