Hryssu misþyrmt á kynfærum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. mars 2014 13:04 visir/kolbrún
Hryssu var misþyrmt á kynfærum með beittu eggvopni á Kirkjulandi á Kjalarnesi í gær. Frá þessu var greint í hádegisfréttum Rúv.Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hjá Matvælastofnun, segir málinu svipa mjög til þeirra mála sem upp komu árið 2011 þegar fjölda hrossa var misþyrmt víða um land. Skurðurinn er um fimm sentimetra langur og eins sentimetra djúpur við skeiðaropið. Allt bendir til þess að hann sé af mannavöldum. Lögregla rannsakar málið en hún hefur reynslu af svipuðum málum sem upp komu árið 2011. Skorið var í kynfæri hryssu á Egilsstöðum í maí 2011 og vakti málið skiljanlega óhug eigenda hryssunnar og annarra á svæðinu. Skömmu síðar voru þremur hrossum misþyrmt í Skagafirði og sama ár var hryssu misþyrmt á Kjóavöllum í Kópavogi.
Tengdar fréttir Önnur hryssa með skurði á kynfærum Nýtt mál er komið upp þar sem skurðir fundust á kynfærum hryssu. Talið er að áverkarnir séu af mannavöldum. Málið var kært til lögreglunnar á Sauðárkróki fyrr í þessum mánuði en lögreglan á Egilsstöðum hefur svipað mál til rannsóknar. Hjá lögreglunni á Sauðárkróki fengust engar upplýsingar um stöðu málsins aðrar en þær að það væri til rannsóknar. Þannig fékkst því ekki svarað hvort einhver liggur undir grun eða hvort málin eru talin tengjast. Þrjár hryssur á Norðurlandi fundust í byrjun mánaðarins með skurði sem taldir eru af mannavöldum. Tvær þeirra voru með skurði á snoppu en ein var með skurði á kynfærum og í skeið. Eigandi hrossanna hafði strax samband við dýralækni sem eftir skoðun komst að þeirri niðurstöðu að hryssurnar hefðu ekki getað veitt sér áverkana sjálfar, og því er talið um mannanna verk að ræða. Hryssurnar fengu skjótt viðeigandi aðhlynningu og voru sár farin að gróa eftir örfáa daga. Þeir sem þekkja til málsins segja það afar óhuggulegt, sér í lagi í ljósi þess að svipað mál kom upp í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum fyrir rúmum mánuði. Þá fann hestamaður tvo skurði á kynfærum hryssu þegar hann var í útreiðatúr og sá blæða úr hryssunni. Dýralæknir var kallaður til og málið kært til lögreglu, en fljótt vaknaði grunur um að um svokallaðan "hestaripper" væri að ræða, dýraníðing sem nýtur þess að misþyrma hrossum. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the Ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. 24. júní 2011 11:12 Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðingum fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöngum og annan minni á ytri kynfærum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undanförnum mánuðum. 21. október 2011 07:00 Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13. maí 2011 14:35 Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum. Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki. Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu. "Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur. Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni. "Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða. Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir. "Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn. Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni. 12. maí 2011 13:28 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Önnur hryssa með skurði á kynfærum Nýtt mál er komið upp þar sem skurðir fundust á kynfærum hryssu. Talið er að áverkarnir séu af mannavöldum. Málið var kært til lögreglunnar á Sauðárkróki fyrr í þessum mánuði en lögreglan á Egilsstöðum hefur svipað mál til rannsóknar. Hjá lögreglunni á Sauðárkróki fengust engar upplýsingar um stöðu málsins aðrar en þær að það væri til rannsóknar. Þannig fékkst því ekki svarað hvort einhver liggur undir grun eða hvort málin eru talin tengjast. Þrjár hryssur á Norðurlandi fundust í byrjun mánaðarins með skurði sem taldir eru af mannavöldum. Tvær þeirra voru með skurði á snoppu en ein var með skurði á kynfærum og í skeið. Eigandi hrossanna hafði strax samband við dýralækni sem eftir skoðun komst að þeirri niðurstöðu að hryssurnar hefðu ekki getað veitt sér áverkana sjálfar, og því er talið um mannanna verk að ræða. Hryssurnar fengu skjótt viðeigandi aðhlynningu og voru sár farin að gróa eftir örfáa daga. Þeir sem þekkja til málsins segja það afar óhuggulegt, sér í lagi í ljósi þess að svipað mál kom upp í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum fyrir rúmum mánuði. Þá fann hestamaður tvo skurði á kynfærum hryssu þegar hann var í útreiðatúr og sá blæða úr hryssunni. Dýralæknir var kallaður til og málið kært til lögreglu, en fljótt vaknaði grunur um að um svokallaðan "hestaripper" væri að ræða, dýraníðing sem nýtur þess að misþyrma hrossum. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the Ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. 24. júní 2011 11:12
Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðingum fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöngum og annan minni á ytri kynfærum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undanförnum mánuðum. 21. október 2011 07:00
Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13. maí 2011 14:35
Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum. Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki. Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu. "Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur. Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni. "Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða. Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir. "Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn. Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni. 12. maí 2011 13:28