Svæði í verndarflokki verði látin í friði Svavar Hávarðsson skrifar 15. apríl 2014 14:00 Orkustofnun biður um að Kerlingarfjöll verði metin að nýju þrátt fyrir að hafa fallið í verndarflokk í 2. áfanga rammaáætlunar. Fréttablaðið/Vilhelm
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hvetja verkefnisstjórn rammaáætlunar til að taka ekkert þeirra svæða sem nú eru í verndarflokki til endurskoðunar í 3. áfanga rammaáætlunar. Það að svæði hafi verið sett í verndarflokk á að tryggja að svæði verði ekki nýtt til orkuframleiðslu enda geti mörg þessara svæða boðið upp á mikla náttúruupplifun og uppbyggingu tengda ferðamennsku. Þetta er á meðal niðurstaðna aðalfundar SAF sem haldinn var í síðustu viku og kemur fram í ályktun. Aðalfundurinn mótmælir jafnframt harðlega öllum tilraunum orkufyrirtækja og opinberra stofnana, þ.m.t. Orkustofnunar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, til að fá verkefnisstjórnina til að taka upp svæði í verndarflokk og meta á nýjan leik. Samtökin telja að „með framferði sínu hafa þessir aðilar að engu áralangar tilraunir til að eyða óvissu um afdrif fjölmargra náttúruperla og sátt um vernd þeirra gegn orkunýtingu“. Orkustofnun sendi þann 10. mars alls 91 virkjunarkost til umfjöllunar hjá verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar. Þar af eru 19 hugmyndir í núverandi verndarflokki. Eins og Fréttablaðið greindi frá 31. mars er verkefnisstjórninni hins vegar í sjálfsvald sett hvort til endurmats virkjanakosta kemur. Úr þessu fékk verkefnisstjórnin skorið með sérstöku lögfræðiáliti umhverfis- og auðlindaráðuneytisins frá 12. mars síðastliðnum. Í áliti ráðuneytisins um endurmat virkjanakosta er tekinn af allur vafi um að lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun leggja þessa ákvörðun í hendur verkefnisstjórninni óháð því hvernig virkjanakosturinn [í verndar- og nýtingarflokki] kom inn á hennar borð að nýju.Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að kjarninn í ályktun SAF sé að ferðaþjónustan er að vekja athygli á mikilvægi almennrar náttúruverndar, bæði fyrir þjóðina en ekki síður ferðaþjónustuna sem atvinnugrein. Grímur segir mjög halla á ferðaþjónustuna í opinberri umræðu sem sé ekki í neinu samhengi við mikilvægi hennar fyrir þjóðina sem stærstu gjaldeyrisskapandi atvinnugreinar landsins. „Það að láta sér detta í hug að hefja orkuvinnslu í Kerlingarfjöllum og á Torfajökulssvæðinu í þessu samhengi kemur ekki til greina að okkar mati,“ segir Grímur og hnykkir á því að í tillögum um virkjanakosti sem bárust verkefnisstjórninni sé verið að fjalla um fjöregg ferðaþjónustunnar þegar til framtíðar er litið. „Langflestir ferðamenn koma til Íslands vegna náttúru landsins, fyrst og síðast. Náttúran er sú vara sem við erum að selja umfram annað. Það er alltaf talað um nýtingu í samhengi við orku og iðnað, en nýting felst í fleiru en þessu og það verður að horfa á nýtingarmöguleika þjóðarinnar á auðlindum sínum í samhengi við þróun síðustu ára og framtíðarhorfur ferðaþjónustunnar. Kannski hefur vöxtur ferðaþjónustunnar verið svo hraður að menn hafa ekki kveikt á þeim nýju hagsmunum sem komnir eru til sögunnar,“ segir Grímur.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira