Brynjar Níelsson afneitar bróður sínum Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2014 13:51 Bræður? Þegar rýnt er í þessa mynd virðist sem svipur sé með þeim en áhöld eru uppi um hvort þeir Brynjar og Gústaf eru blóðbræður.
Gústaf Níelsson sagnfræðingur kærði Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur stjórnsýslufræðing til siðanefndar HÍ vegna skrifa hennar. Málið komist í fréttir og hefur DV fjallað skilmerkilega um það. Brynjar Níelsson þingmaður, bróðir Gústafs, segir þá ekki klikka á þeim bænum -- alltaf þegar málið sé til umfjöllunar er tekið fram að þeir tveir séu bræður. Brynjar furðar sig á því að blaðamenn DV telji sig þurfa að koma því að þessu með bróðernið þó innihald fréttarinnar hafi ekkert með sig að gera. Og Brynjar bætir um betur í orðsendingu sem hann setur á Facebook: „Svo eru áhöld um það hvort Gústaf sé raunverulega bróðir minn. Sögur hafa gengið um að hann sé tökubarn og faðir minn heitinn hafi fundið hann á ferðalagi einhvers staðar í austurlöndum nær, sennilega nálægt Beirút. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti.“ „Þetta er misskilningur hjá Brynjari,“ segir Gústaf en Vísir náði í hann um það bil sem hann var að stíga upp í flugvél, á leið til Spánar. „Kenningin gengur út á það ég hafi fundist á sorphaugum í sígaunahverfi á Ítalíu. En, fræðimenn greinir á um þetta.“ Vert er að geta þess að miðað við tóninn í þeim bræðrum virðist sem þeim sé fremur skemmt yfir þessum bollaleggingum en hitt. Innlegg by Brynjar Níelsson.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira