Starfsmaður óskast! Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2014 13:53 Snorri Björn forstöðumaður þróunarsviðs segir merkilegt hversu margir búi yfir þekkingu eða reynslu af norrænu ráðherranefndinni, þegar að er gáð.
Byggðastofnun óskar eftir sérfræðingi til starfa og auglýsir eftir slíkum á starfatorgi. Meginverkefni hans verður að fylgja eftir verkefnum sem sett hafa verið af stað samkvæmt sóknaráætlunum landshluta og vinna að framgangi verkefna samkvæmt formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, eins og það er orðað í auglýsingunni. Í hæfniskröfum er nefnt háskólanám, sjálfstæði í vinnubrögðum, tungumálakunnátta svo sem danska, norska eða sænska og lipurð í mannlegum samskiptum og svo er tekið fram: „Þekking og reynsla af norrænu samstarfi á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar.“ Þessar kröfur hljóta að þrengja hringinn verulega því varla eru það margir sem búa yfir slíkri reynslu? Snorri Björn Sigurðsson er forstöðumaður þróunarsviðs. Er ekki augljóst að búið er að eyrnamerkja einhverjum stöðuna? Nei, Snorri Björn segir svo ekki vera, það séu ótrúlega margir sem hafa komið að norrænu samstarfi, ef að er gáð. „Það er þannig að Ísland er núna með formennsku í norrænu ráðherranefndinni, erum með formennsku þar fimmta hvert ár. Við erum fyrst og fremst að horfa til þess sem heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Þar er formennskuáætlunin kölluð norræna lífhagkerfið. Það verkefni mun standa í þrjú ár. Sá starfsmaður sem við erum að velta fyrir okkur þarf að geta komið að þessu verkefni með einhverjum hætti sem á eftir að skilgreina útí hörgul, sem fer eftir hæfileikum þess aðila sem við finnum. Fullt af Íslendingum sem hefur komið að þessu með einum eða öðrum hætti. Þetta ætti ekki að útiloka einn né neinn, mestu skiptir að viðkomandi geti tjáð sig á norrænu tungumáli. Þá er ég ekki að tala um íslensku.“ Snorri Björn segist spurður ekki hver launin eru, forstjórinn mun ganga frá launamálum þegar þar að kemur en umsóknarfrestur eru þrjár vikur eða til 7. apríl. En, eru margir búnir að sækja um? „Neineineinei, þetta fór ekki inn fyrr en eftir vinnu í gærkvöldi. Kom mér reyndar á óvart hversu margir eru búnir að hringja. Átti ekki von á viðbrögðum svo fljótt.“
Mest lesið Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Rex Heuermann fær lífstíðardóm Erlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Sjá meira