Ýmist fáklæddar eða ljótar og feitar Hrund Þórsdóttir skrifar 18. mars 2014 20:00 Simone Schreiber, framleiðandi hjá CCP, hefur spilað tölvuleiki í 25 ár og segir staðalímyndir kvenna sem stundi þetta áhugamál pirrandi.
Konur í tækni er félagsskapur sem hefur að markmiði að auka áhuga kvenna á tæknigreinum og hvetja þær til starfsframa þar. Á fundi félagsins hjá CCP í morgun var rætt um hlutverk kvenna í tölvuleikjaheiminum. „Þær hafa kannski fáar fyrirmyndir og þeim bara dettur ekki í hug að þær hafi áhuga á þessu. Ég hef nýlega heyrt tvær mismunandi sögur af stelpum sem eru í tölvunarfræði af því að þær þurftu að taka einn forritunarkúrs í öðru námi og sáu að þetta var eitthvað sem þeim fannst skemmtilegt og færðu sig yfir,“ segir Berglind Rós Guðmundsdóttir, þróunarhópsstjóri hjá CCP. Árið 2006 voru 38% þeirra sem spiluðu tölvuleiki konur en í fyrra var hlutfallið orðið 45%. Þar af spila þó um 60% aðeins svokallaða kaffipásuleiki eða símaleiki. Aðeins 5% spilara CCP eru konur en í þróun eru leikir sem vonast er til að höfði til þeirra. „Við viljum ekki stelpuleiki með bleikum smáhestum og regnbogum en hluti eins og að geta valið sér kvenkarakter í leikjunum og ýmislegt fleira hefur vantað,“ segir Berglind.Simone Schreiber, framleiðandi hjá CCP, hefur spilað tölvuleiki í 25 ár en segir þá mjög karlmiðaða. „Kvenkarakterar standa nær aldrei til boða og leikirnir eru oft mjög ofbeldisfullir og bara höfða ekki til kvenna,“ segir hún. Simone segir staðalímyndir kvenna sem spili tölvuleiki lífseigar. „Þær eru ýmist álitnar kynþokkafullar bombur sem spili fáklæddar eða ljótar og feitar konur eða stelpur sem geti aldrei eignast kærasta,“ segir hún. „Báðar þessar staðalímyndir eru mjög pirrandi.“ Af hverju er mikilvægt að höfða til fleiri kvenna? „Af því að ef konur kæmu í auknum mæli að þróun tölvuleikja yrðu þeir betri og myndu höfða til stærri hóps, ekki bara til fleiri kvenna heldur líka til karla sem spila ekki nú þegar. Fjölbreytileiki leikjanna myndi líka aukast,“ segir Simone.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira